Lífið

Allison Williams sem Pétur Pan

Allison Williams er spennt að takast á við hlutverkið.
Allison Williams er spennt að takast á við hlutverkið. Vísir/Getty
Leikkonan Allison Williams leikur sjálfan Pétur Pan í sjónvarpsútsendingu NBC sem nefnist Peter Pan Live.

Williams er best þekkt fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum vinsælu Girls en segir Pétur Pan vera draumahlutverkið.Hún var meira að segja tilbúin að klippa af sér hárið en segist þó hafa verið fegin þegar hárkollan þótti heppilegri kostur á sviðinu. 



NBC birti á dögunum fyrstu myndina af Williams sem Pétur Pan á Twitter. Leikkonan birti sömuleiðis mynd af sér á Instagram í  Pétur Pan-búning þriggja ára gömul þar sem hún skrifar undir „Ég hef verið að æfa mig fyrir hlutverkið lengi.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×