Smáskjálftavirkni á gosstöðvunum norðan Vatnajökuls hélt áfram á svipuðum nótum og í gær fram til klukkan þrjú í nótt er skjálfti 5,5 stig að stærð varð norðantil í Bárðarbunguöskju en það er einn öflugasti skjálfti sem riðið hefur yfir á svæðinu frá því hrinan hófst.
Í framhaldinu jókst skjálftavirkni bæði á svæðinu nyrst undir Dyngjujökli suður af gosstöðvunum en þó sérstaklega í Herðubreiðartöglum. Stærsti skjálftinn þar hingað til var tæplega 3 að stærð. Sjálfvirkt staðsettir skjálftar frá miðnætti voru í kringum 130 fram til klukkan sex í morgun.
Samkvæmt sérfræðingi á Veðurstofunni er ekki annað að sjá á vefmyndavélum en að virkni á gosstöðvunum sé svipuð og hún var í gær.
5,5 stiga skjálfti í nótt
