Íslenski boltinn

Silfurskeiðin búin að velja Evrópubúning Stjörnunnar

Stjarnan er vön því að vera í bláu.
Stjarnan er vön því að vera í bláu.
Stuðningsmenn Stjörnunnar fengu að kjósa um hvernig treyju félagið myndi spila í er það mætir til leiks í Evrópukeppni í sumar. Niðurstaða liggur nú fyrir.

Búningurinn sem stuðningsmennirnir völdu er frekar óhefðbundinn og lítt líkur aðalbúningi Stjörnunnar. Ljósblár og hvítur.

Aðalbúningur Stjörnunnar lenti í öðru sæti í atkvæðagreiðslunni. Tæplega 1.000 manns tóku þátt í að kjósa og fékk Evróputreyjan 42 prósent kosningu.

Nánar má lesa um málið á heimasíðu Silfurskeiðarinnar.



Evrópubúningurinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×