Lífið

Letterman hættir á næsta ári

Óli Kristján Ármannsson skrifar
David Letterman
David Letterman vísir/getty
Sjónvarpsmaðurinn góðkunni, David Letterman, upplýsti við upptökur á þætti sínum „The Late Show“ í dag að hann hyggðist fara á eftirlaun á næsta ári.

Búist var við því að sjónvarpsstöðin CBS sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu, að því er greint var frá í fréttaskoti fréttastofunnar CNN um málið.

David Letterman er einn farsælasti sjónvarpsþáttastjórnandi Bandaríkjanna. Hann verður 67 ára gamall tólfta þessa mánaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×