Menning

Draga upp myndir af ákveðnum konum á Sturlungaöld

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ég fjalla um möguleika kvenna til áhrifa á eigin líf og annarra á 13. öld,“ segir Guðrún Nordal.
"Ég fjalla um möguleika kvenna til áhrifa á eigin líf og annarra á 13. öld,“ segir Guðrún Nordal. Fréttablaðið/Anton
Kvenkyns líf nefnist erindi Guðrúnar Nordal á málþingi um konur í Sturlungu sem haldið verður að Kringlumýri í Skagafirði í dag milli klukkan 17 og 19. Um hvað skyldi hún tala?

„Ég ætla að draga upp mynd af ákveðnum konum í Dölunum, Jóreiði Hallsdóttur sem varð ung ekkja og bjó í Sælingsdalstungu og dóttur hennar Helgu, sem varð kona Sturlu Þórðarsonar á Staðarhóli. Líka dóttur Helgu og Sturlu sem ung giftist syni Gissurar Þorvaldssonar og lenti í Flugumýrarbrennu.“

Guðrún segir Sturlungu karlasögu um stríð og deilur og telur formleg áhrif kvenna á framvindu atburða hafa verið takmörkuð. Segir þó Jóreiði í Sælingsdalstungu hafa haldið sjálfstæði sínu með því að fara í hungurverkfall þegar maður hafi girnst hana og tekið höndum eftir að hún varð ekkja.

„Ég fjalla um möguleika kvenna til áhrifa á eigin líf og annarra á 13. öld og tengi frásögnina líka inn í Laxdælu. Það er skemmtilegt svið sem ég ætla að nota mér í þessu erindi.“

Stofnun Árna Magnússonar, félagið Á Sturlungaslóð, Héraðsbókasafn Skagfirðinga og Kakalaskáli halda málþingið.

Auk Guðrúnar verða Gunnar Karlsson, prófessor við HÍ, og Sigríður Sigurðardóttir, forstöðumaður Byggðasafns Skagfirðinga, með erindi.

Gunnars erindi nefnist Elskaðar konur – ástfangnar konur og Sigríður kallar sitt erindi Hefði Jórunn sagt já – og fjallar þar um friðarsinnann Jórunni Kálfsdóttur á Hafsteinsstöðum í Skagafirði.

Guðrún segir alla velkomna í Kakalaskála á kvenréttindadaginn til heiðurs formæðrum okkar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.