Innlent

Björgunarsveitir kallaðar út vegna slasaðrar skíðakonu

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Erlend skíðakona liggur slösuð fyrir ofan Ólafsfjarðarmúla og hafa björgunarsveitir frá Ólafsfirði, Siglufirði og Dalvík verið kallaðar út. Samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörgu virðist konan töluvert slösuð en er þó ekki talin í lífshættu.

Þá er þyrla ferðaþjónustufyrirtækis á staðnum og mun fljúga á móti björgunarfólki og flytja það á slysstað. Þar mun björgunarfólk búa um konuna til flutnings með þyrlunni.

Uppfært 16:57

Tilkynning frá Landsbjörgu.

Erlend fjallaskíðakona er slasaðist í Ólafsfjarðarmúla er komin um borð í þyrlu ferðaþjónustufyrirtækis sem flytur hana á Sjúkrahúsið á Akureyri. Fjórar björgunarsveitir voru kallaðar út og tvær þyrlur ferðaþjónustuaðila tóku þátt í aðgerðum dagsins auk lögreglu og bráðatækna. Konan var að skíða niður Múlann við erfiðar aðstæður þegar hún féll en hún var þá stödd ofan við gamla Ólafsfjarðarveg, um 300 m frá gangnamunnanum Ólafsfjarðarmegin. Er talið að hún sé töluvert illa slösuð en þó ekki í lífshættu.

Fyrstu björgunarmenn voru komnir á staðinn um hálftíma eftir að útkallið barst. Þyrla annars ferðaþjónustuaðila í nágrenninu sótti björgunarsveitamann og bráðatækni á Dalvík og flutti á slysstað. Ekki þótti ráðlegt að senda mikið af björgun á slysstaðinn þar sem hann var metinn hættulegur vegna mögulegs grjóthruns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×