Menning

Á lista með helstu leikstjórunum

Af sýningu á uppsetningu Þorleifs Arnar á Rómeó og Júlíu.
Af sýningu á uppsetningu Þorleifs Arnar á Rómeó og Júlíu. MYND/Þorleifur Örn
„Þetta er auðvitað mikill heiður, enda er ég þarna á lista með öllum helstu leikstjórum heims,“ segir Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri, en uppsetning hans á Rómeó og Júlíu hefur verið tilnefnd sem sýning ársins í Þýskalandi, Austurríki og í Sviss á nachtkritik.de, stærsta vettvangi leiklistarumræðu í Þýskalandi.

Sýningin, sem var frumsýnd í borgarleikhúsinu í Mainz í október síðastliðnum, er nýstárleg nálgun við þetta frægasta verk Shakespeares.

„Þetta er ekki bara mín vinna, bak við þessa uppsetningu stendur þrotlaus vinna og langt samstarf við listamenn eins og Jósef Halldórsson og Filippíu Elísdóttur, sem ég hef unnið með lengi,“ bætir Þorleifur við.

Fyrir vefinn nachtkritik.de skrifa vel á sjötta tug gagnrýnenda – en hann birtir leikdóma að morgni eftir frumsýningar á flestöllum verkum hins þýskumælandi heims.

Þorleifur hefur áður verið tilnefndur í þessum sama flokki fyrir uppsetningu sína á Pétri Gaut árið 2010, en vefurinn tekur árlega saman þær sýningar sem þessir gagnrýnendur telja merkilegastar ár hvert og birtur er listi yfir 60 bestu sýningarnar, sem eru valdar úr hópi um 1.500 sýninga.

„Þetta er í sjötta skipti sem tilnefningar eru veittar en aldrei hafa verið fleiri sýningar en þetta árið,“ segir Þorleifur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×