Lífið

Kósý stemning í kvöld í Offiseraklúbbnum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Marteinn Valdimarsson, hjónin Elín og Tom Griffin sem kynntust á Keflavíkurflugvelli, Kevyn Silverman, Erlingur Bjarnason, María Ben Erlingsdóttir og Gunnar Þórmarsson mætt í Offiseraklúbbinn.
Marteinn Valdimarsson, hjónin Elín og Tom Griffin sem kynntust á Keflavíkurflugvelli, Kevyn Silverman, Erlingur Bjarnason, María Ben Erlingsdóttir og Gunnar Þórmarsson mætt í Offiseraklúbbinn. Mynd/OlgaBjört@vf.is
„Þetta er í fyrsta skipti sem efnt er til endurfunda Bandaríkjamanna og Íslendinga sem unnu á Keflavíkurflugvelli meðan herinn var þar, á árunum 1952 til 2006,“ segir María Ben Erlingsdóttir, framkvæmdastjóri Keflanding, um samkomu í Offiseraklúbbnum á flugvallarsvæðinu síðdegis í dag.

Þangað hafa um 120 manns boðað komu sína, þar af 25 Bandaríkjamenn.



María segir rútufyrirtækið Guðmund Tyrfingsson, sem á Keflanding, skipuleggjanda samkomunnar.

„Endurfundir NASKEF (Naval Air Station Keflavik) er einn af viðburðum Ljósanætur í Reykjanesbæ, enda munu samkomugestir verða fluttir í rútum niður að höfn í lok dags til að fylgjast með glæsilegri flugeldasýningu við höfnina.“

Allt hefur þetta átt nokkurn aðdraganda, að sögn Maríu.

„Við fengum military.com, sem er 25 milljón manna vefur, í lið með okkur og það voru tugþúsundir sem lásu orðsendingar okkar. Sú fyrsta birtist í maí á þessu ári en við hefðum þurft að vera fyrr á ferðinni,“ segir hún.

„Þrátt fyrir það erum við að fá hingað 25 manns að utan og ágæta þátttöku í heildina.“



María segir Offiseraklúbbinn líta út nánast eins og hann var í tíð Kanans á vellinum.

„Þetta var mjög vinsæll staður og það verður kósý stemning þar í kvöld,“ segir hún.

Meðal atriða á dagskránni verða ávörp bæjarstjóra Reykjanesbæjar og bandaríska sendiherrans á Íslandi.

„En þetta eru endurfundir og við viljum að fólk blandi fyrst og fremst geði hvert við annað,“ segir María. „Svo verður rosa flott kvöldverðarhlaðborð, forréttur og eftirréttur og áður en fólk fer verður dregið í happdrætti með 30 flottum vinningum frá fyrirtækjum hér á Suðurnesjum.“



Erlingur Bjarnason, faðir Maríu, er einn þeirra sem hlakka til kvöldsins. Hann var framkvæmdastjóri birgðadeildar varnarliðsins í 26 ár og segir hafa verið bæði sjokk og söknuð í hans huga þegar herinn fór með stuttum fyrirvara.

„Ég átti góð ár á vellinum og eignaðist marga góða vini sem ég held sambandi við en held að þeir bandarísku séu ekki með í hópnum sem hingað er kominn,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×