Lífið

Annar endir á How I Met Your Mother kominn á netið

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Leikararnir í How I Met Your Mother vörðu nær áratug af lífi sínu í þáttaröðina.
Leikararnir í How I Met Your Mother vörðu nær áratug af lífi sínu í þáttaröðina.
Þáttaröðin How I Met Your Mother hvarf af skjánum í mars síðastliðnum eftir níu þáttaraðir af leit aðalsöguhetju þáttarins, Ted Mosby, eftir hinni einu sönnu ást. Margir aðdáaendur þáttanna voru ósáttir við hvernig endalokin urðu en nú hefur annar endir lekið á netið. Gefa átti út hin endalokin með dvd-útgáfu níundu þáttaraðarinnar. Viðbrögð áhorfenda við síðasta þætti How I Met Your Mother voru svo sterk að annar handristhöfunda þáttanna, Carter Bays, taldi sig þurfa að bregðast við og setti eftirfarandi færslu á Twitter: „Við völdum þann endi sem við völdum og við stöndum með honum. En við elskum hina útgáfuna líka.“

Hér að neðan má sjá endinn sem er ansi ólíkur þeim sem á endanum fór í loftið. 










Fleiri fréttir

Sjá meira


×