Snúa aftur í séreignarsparnað Anna Dröfn Ágústsdóttir skrifar 2. september 2014 10:15 Mikið hefur verið að gera hjá bönkunum við gerð nýrra séreignarsparnaðarsamninga eftir að lög um húsnæðislán voru samþykkt á Alþingi. Fréttablaðið/Pjetur
Fjöldi fólks hefur gert séreignarsparnaðarsamning við bankana vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar í tengslum við húsnæðislán. Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka, segir marga hafa hætt með séreignarsparnað í kjölfar efnahagshrunsins 2008 en margir þeirra hafa nú snúið aftur. Hjá Íslandsbanka var farið í sérstakt átak og hringt í viðskiptavini til að kynna fyrir þeim möguleika í tengslum við séreignarsparnað eftir að ríkisstjórnin kynnti úrræði í tengslum við húsnæðislán. Una segist sjá verulega aukningu í gerð séreignarsparnaðarsamninga síðan í vor. Hjá Arion banka var opnuð sérstök upplýsingasíða og fræðslufundir haldnir ásamt því að sérstaklega var haft samband við viðskiptavini. Snædís Ögn Flosadóttir, sérfræðingur á eignastýringasviði Arion banka, segir að séreignarsparnaðarsamningum hafi einnig fjölgað mikið hjá Arion banka í vor og sumar eftir að lög um leiðréttingu höfuðstóls íbúðarlána voru samþykkt á Alþingi. Umsóknarfrestur um lækkun höfuðstóls íbúðalána er runninn út en áfram verður hægt að sækja um nýtingu séreignarsparnaðar. Tímabilið sem leyfilegt er að ráðstafa hluta af séreignarsparnaði skattfrjálst er frá 1. júlí 2014 til 30. júní 2017. Til að fá nýttan séreignarsparnað frá 1. júlí þurfti að sækja í síðasta lagi um í gær. Einstaklingar hafa rétt á að nýta 500 þúsund krónur á ári skattfrjálst af séreignarsparnaði sínum en hjón og sambýlisfólk hafa rétt á að ráðstafa 750 þúsund krónum samtals árlega.
Alþingi Mest lesið „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Sjá meira