Tíska og hönnun

Nýtt andlit H&M

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ofurfyrirsætan Miranda Kerr er nýtt andlit vor- og sumarlínu tískurisans H&M.

H&M afhjúpaði þetta á Twitter-síðu sinni í dag og setti einnig myndband af fyrirsætunni á Instagram-síðu sína.

„Hæ fylgjendur H&M. Ég er Miranda Kerr og ég er nýtt andlit vorherferðar H&M. Fylgist nánar með frekari upplýsingum,“ segir Miranda í myndbandinu.

Nú bíða margir í ofvæni eftir ljósmyndum af línunni en þær verða opinberaðar í mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.