Tíska og hönnun

Dýrasta flíkin á fjögur þúsund krónur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Verslunarkeðjan Primark er búin að afhjúpa nýja vor- og sumarlínu sem heitir Boho Grunge. Dýrasta flíkin í línunni er á 23 pund, rétt rúmlega 4.400 krónur.

Línan er innblásin af tónlistarhátíðum og er í henni hægt að finna hippalegar flíkur, skemmtileg mynstur og nóg af gallaefni.

Í fylgihlutum eru stórir hattar áberandi sem og bakpokar og stígvél.

Primark nýtur aukinna vinsælda en nú eru 269 verslanir starfræktar í níu Evrópulöndum. Flestar verslunirnar eru í Bretlandi en nú er stefnt að því að opna verslun í Boston og fleiri verslanir í Bandaríkjunum árið 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×