Enski boltinn

Dummett hetja Newcastle gegn Palace

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Newcastle-menn fögnuðu ógurlega eftir sigurmark Pauls Dummett.
Newcastle-menn fögnuðu ógurlega eftir sigurmark Pauls Dummett. Vísir/Getty
Varnarmaðurinn Paul Dummett tryggði Newcastle sæti í 4. umferð enska deildarbikarsins þegar hann skoraði sigurmark liðsins í framlengingu gegn Crystal Palace í kvöld.

Dwight Gayle náði forystunni fyrir Palace þegar hann skoraði úr vítaspyrnu á 25. mínútu eftir að Daryl Janmaat braut á Wilfried Zaha innan teigs.

Frakkinn Emmanuele Riviere jafnaði metin með sínu fyrsta marki fyrir Newcastle á 36. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Riviere var aftur á ferðinni á 48. mínútu þegar hann skoraði úr vítaspyrnu sem Sammy Ameobi fiskaði.

Lærisveinar Neils Warnock gáfust hins vegar ekki upp og á lokamínútu leiksins jafnaði Sullay Kaikai metin í sínum fyrsta leik fyrir félagið.

Vítaspyrnukeppni virtist ætla að verða niðurstaðan þar til áðurnefndur Dummett kastaði sér fram og skallaði boltann í mark Palace á 112. mínútu í framlengingunni og tryggði Newcastle þar með farseðilinn í 16-liða úrslitin.


Tengdar fréttir

Liverpool áfram eftir maraþonleik

Liverpool sló B-deildarlið Middlesbrough út eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni í þriðju umferð enska deildarbikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×