Kimi Raikkonen ók á Felipe Massa á fyrsta hring og báðir duttu út keppni. Þessi árekstur gerði það að verkum að keppnin var stöðvuð og endurræst eftir töluverða töf.
Keppnin hófst þá aftur á eftir öryggisbílnum.
Nico Rosberg, tilkynnti gírkasavandræði á 29. hring. Hann missti forystuna til liðsfélaga síns, Lewis Hamilton. Rosberg datt úr keppni í fyrsta sinn á tímabilinu.
„Þetta gerðist hægt og rólega, byrjaði á hring 20. Ég reyndi að bjarga gírkassanum með því að breyta aksturslaginu. En það dugði ekki til,“ sagði Rosberg eftir að hann hætti keppni.
Eftir rosaleg baráttu tókst Sebastian Vettel að komast fram úr Fernando Alonso. Þeir voru búnir að berjast í þó nokkurn tíma.

Valtteri Bottas átti einn besta akstur dagsins en hann ræsti 17. en endaði í 2. sæti. Hann náði öðru verðlaunasæti sínu í röð, eftir a hafa náð sínu fyrsta í síðustu keppni.
„Auðvitað vill maður aldrei að liðsfélagi falli úr keppni en ég þurfti virkilega á þessu að halda,“ sagði Hamilton.
„Markmiðið var að enda eins ofarlega og hægt var, liðið hefur verið frábært og bíllinn er góður,“ sagði Bottas.
„Við rétt náðum að halda Jenson fyrir aftan okkur, einn hringur í viðbót hefði gert þetta virkilega erfitt,“ sagði Ricciardo.

1.Lewis Hamilton - Mercedes - 25 stig
2.Valtteri Bottas - Williams - 18 stig
3.Daniel Ricciardo - Red Bull - 15 stig
4.Jenson Button - McLaren - 12 stig
5.Sebastian Vettel - Red Bull - 10 stig
6.Fernando Alonso - Ferrari - 8 stig
7.Kevin Magnussen - McLaren - 6 stig
8.Nico Hulkenberg - Force India - 4 stig
9.Daniil Kvyat - Toro Rosso - 2 stig
10.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso - 1 stig
11.Sergio Perez - Force India
12.Romain Grosjean - Lotus
13.Adrian Sutil - Sauber
14.Jules Bianchi - Marussia
15.Kamui Kobayashi - Caterham
16.Max Chilton - Marussia
Þessir duttu úr keppni:
Pastor Maldonado - Lotus
Esteban Gutierrez - Sauber
Marcus Ericsson - Caterham
Felipe Massa - Williams
Nico Rosberg - Mercedes
Kimi Raikkonen - Ferrari