Lífið

"Ég geri mig oft að fífli á handboltaleikjum"

Marín Manda skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir Trendnet.is bloggari
Elísabet Gunnarsdóttir Trendnet.is bloggari
Nafn? Elísabet Gunnarsdóttir

Aldur? 26 ára

Starf?  Bloggari og annar eigandi vefsíðunnar Trendnet.is

 

Hvern faðmaðir þú síðast?

Dóttur mína þegar við vöknuðum í morgun.

En kysstir?

Ég kyssti manninn minn kveðjukossi í nótt þegar hann fór til útlanda yfir helgina.

Hver kom þér síðast á óvart og hvernig?

Mágur minn þegar hann tók á móti okkur fjölskyldunni með innisprengju á gamlárskvöld sem varð til þess að við hrukkum í kút.

Hvaða galla í eigin fari ertu búin að umbera allt of lengi?

Það er gott að umbera gallana sína og ég á nóg af þeim eins og aðrir. Ég ætla glöð að umbera þá áfram.

Ertu hörundsár?

Já, ég held að ég sé smá hörundsár. Fer kannski eftir aðstæðum.

Dansarðu þegar enginn sér til?

Ég dansa mjög reglulega með dóttur minni á stofugólfinu heima. Hún stjórnar ferðinni.

Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvernig?

Ég geri mig mjög oft að fífli á handboltaleikjum hjá manninum mínum þar sem ég læt hátt í mér heyra á íslensku innan um þúsundir Frakka sem horfa á mig með undrunarsvip.

Hringirðu stundum í vælubílinn? Já, ég á það til.

Tekurðu strætó?

Nei, ég hjóla. Það er miklu betra!

Hvað eyðirðu miklum tíma á Facebook á dag?

Ég nota Facebook mjög mikið í vinnunni og líka til þess að halda sambandi við fólkið mitt á Íslandi. Það er mismunandi frá degi til dags hversu miklum tíma ég eyði þar.

Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heilsarðu þeim?

Ég fer ekki hjá mér en finnst ég stundum þekkja viðkomandi (þó að ég geri það alls ekki) og brosi því mögulega meira en annars.

Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina?

Borða reykt kjöt. Eins spennt og ég verð í desember eftir jólamatnum þá er ég jafn spennt fyrir því að borða léttari fæðu með hringana á fingrunum núna um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×