Menning

Framkalla léttleika í sálinni í Salnum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þær Guðrún, Petrea, Kristrún og Karen Erla voru að æfa Kettina þegar ljósmyndarann bar að garði.
Þær Guðrún, Petrea, Kristrún og Karen Erla voru að æfa Kettina þegar ljósmyndarann bar að garði. Fréttablaðið/GVA
„Þetta eru fyrstu hádegistónleikar ársins í Salnum og það sem einkennir þá er gleði,“ segir Guðrún Birgisdóttir, ein þeirra flautuleikara sem spila í Salnum í hádeginu í dag. Hún grínast með að ekki veiti af að framkalla léttleika í sálinni í sykurfallinu eftir hátíðarnar. „Það er víða mikið spilað af Vínarmúsík í tilefni nýja ársins, við erum bara með eina syrpu af henni á okkar tónleikum, eftir Johann Strauss yngri en svo erum við með eitt franskt verk, Ketti eftir Marc Berthomieu og annað ítalskt eftir Vivaldi sem heitir Gullfuglinn. Svo það snýst allt um dýr hjá okkur, leðurblöku, gullfugl og ketti!“



Í Flautukórnum eru tólf flautuleikarar sem taka virkan þátt í íslensku tónlistarlífi bæði með kennslu og tónleikum. Hann skipa að þessu sinni auk Guðrúnar þau Hafdís Vigfúsdóttir sem flytur einleik í Gullfuglinum, Jón Guðmundsson, Karen Erla Karólínudóttir, Kristrún H. Björnsdóttir, Margrét Stefánsdóttir og Petrea Óskarsdóttir.



„Þeir koma fram sem eru lausir á hverjum tíma og þetta er hópurinn sem var tilkippilegur núna. Hafdís er nýkomin úr löngu framhaldsnámi og það er gaman að hún skuli vilja spila fyrir okkur Gullfuglinn,“ segir Guðrún og er ánægð með að hópurinn skyldi komast í þessa tónleikaröð, enda segir hún mikið flautað í Kópavogi.

Tónleikarnir hefjast klukkan 12.15 og gestum er boðið upp á te og kaffi áður en þeir byrja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.