Menning

Minning um nótt á hráum teknóstað

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Við Ingólfur lögðum grunninn að þessu verki í fyrravor þegar ég dvaldi hjá honum nokkrar vikur í Berlín,“ segir hann um klarinettukonsertinn Sisyfos.
"Við Ingólfur lögðum grunninn að þessu verki í fyrravor þegar ég dvaldi hjá honum nokkrar vikur í Berlín,“ segir hann um klarinettukonsertinn Sisyfos. Fréttablaðið/Valli
„Við Ingólfur lögðum grunninn að þessu verki í fyrravor þegar ég dvaldi hjá honum nokkrar vikur í Berlín,“ segir Gunnar Andreas Kristinsson tónskáld um klarinettukonsertinn Sisyfos sem frumfluttur var af Ingólfi Vilhjálmssyni og Kammersveit Reykjavíkur í Norðurljósasal Hörpu í gærkvöldi klukkan 21.

Gunnar segir leiðir þeirra Ingólfs oft hafa legið saman á tónlistarbrautinni og tekur fram að verkið Sisyfos tengi þá saman á þrennan hátt.

„Við vorum saman í heimspekitímum í MH þar sem við kynntumst fyrst goðsögninni um Sisyfos, sem Albert Camus fjallar um í þekktri heimspekiritgerð. Einnig vorum við saman á námskeiði í indverskum ryþmum við Konservatoríið í Amsterdam fyrir átta árum. Um miðbik konsertsins beiti ég tækninni sem við lærðum þar og gef þannig Ingólfi tækifæri til að rifja upp þessa tíma. Undir lokin dettur verkið svo inn í þrástefjaríkt algleymi og minningin um nótt á hráum teknóstað í gamalli raforkustöð í Berlín – E-Werk, árið 1994, nær að lauma sér inn í verkið á þessum tímapunkti.“

Þessar útskýringar kalla á enn frekari upplýsingar. „Eftir nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík og MH fórum við Ingólfur báðir til Hollands, ég til Haag og hann til Amsterdam. Hann heimsótti mig og spilaði verk eftir mig á tónleikum í konunglega tónlistarskólanum í Haag. Svo var hann líka í kammersveitinni Seul og spilaði þar annað verk eftir mig,“ lýsir Gunnar og rifjar líka upp Interrail-ferðalag sem þeir félagar fóru í eftir kórferð með Hamrahlíðarkórnum til Danmerkur 1994.

„Við tókum Austur-Evrópu og komum við í Berlín á áhugaverðum tíma, því aðeins nokkur ár voru liðin frá falli múrsins.“ Áður en að flutningi Sisyfosar kom, eða klukkan fimm í gær, var annað verk eftir Gunnar frumflutt. Það nefnist Regradeation og hljómaði líka í Norðurljósasal Hörpu, leikið af Stockholm saxofon kvartett.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×