Menning

Óperan Don Giovanni í Háskólabíói

Wolfgang Amadeus Mozart
Wolfgang Amadeus Mozart
Sena mun í samstarfi við the Royal Opera House og the Royal Ballet sýna beint frá sýningu The Royal Opera House á óperu Mozarts, Don Giovanni, í Háskólabíói á miðvikudagskvöldið.



Þetta er glæný uppfærsla á háleitri tragikómedíu Mozarts, sem var fyrst sett á svið árið 1787, en í túlkuninni er ímyndunaraflið í forgrunni. Don Giovanni er listamaður sem tælir konur í stríðum straumum með því að skapa undursamlegar tálmyndir. Kynferðislegir sigrar hans eru hégómlegar tilraunir til að flýja eigin dauðleika og verða flagaranum dýrkeyptir.

Kasper Holten stýrir uppfærslunni, sem verður svolítið léttari en venjan er í meðhöndlun hans, þrátt fyrir að undirtónninn sé mjög myrkur. Söngvarar í óperunni eru ekki af verri endanum, Mariusz Kwiecien er einna fremstur þeirra sem syngja hlutverk Dons Giovanni í samtímanum, Alex Esposito er ungur og áræðinn Leporello og Véronique Gens, sem er heimsþekkt sópransöngkona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×