Menning

Koma út úr skápnum eftir 30 ár

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Saga Geirdal Jónsdóttir og Sunna Borg í hlutverkum sínum í leikritinu Lísa og Lísa sem er einlægt og skemmtilegt verk.
mynd/Auðunn Níelsson
Saga Geirdal Jónsdóttir og Sunna Borg í hlutverkum sínum í leikritinu Lísa og Lísa sem er einlægt og skemmtilegt verk. mynd/Auðunn Níelsson mynd/Auðunn Níelsson
„Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og fróðlegt æfingaferli enda sérstök sýning,“ segir leikkonan Saga Geirdal Jónsdóttir um leikritið Lísa og Lísa sem frumsýnt verður hjá Leikfélagi Akureyrar á morgun.

Saga leikur annað aðalhlutverkið á móti leikkonunni Sunnu Borg en þær bregða sér í hlutverk samkynhneigðs pars á sjötugsaldri sem ákveður að koma út úr skápnum eftir 30 ára sambúð, hálfvegis í felum.

Ungt skáld hvetur þær til að opinbera samband sitt á leiksviði sem gerir það að verkum að þær fara að rifja upp liðna tíma.

„Þetta er skemmtileg blanda af gamni og alvöru. Við höfum verið með áhorfendur á síðustu æfingum sem hafa hlegið og skemmt sér,“ segir Saga en nú þegar er uppselt á nokkrar sýningar.

Jón Gunnar Þórðarson leikstýrir verkinu sem sýnt er í Rýminu á Akureyri. Móheiður Helgadóttir sér um leikmyndina og Þóroddur Ingvarsson um lýsingu. Verkið er nýtt írskt verðlaunaverk eftir Amy Conroy






Fleiri fréttir

Sjá meira


×