Önnur lið sýna okkur meiri virðingu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. mars 2014 07:00 Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson. fréttablaðið/daníel
Á miðvikudag mætir íslenska landsliðið því velska í öðrum æfingaleik sínum þetta árið. Strákarnir töpuðu fyrir Svíum, 2-0, í Abú Dabí í upphafi árs en aðeins leikmenn sem spila á Norðurlöndunum tóku þátt í leiknum. Landsliðsþjálfararnir Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson gátu valið sitt sterkasta lið að þessu sinni en eini leikmaðurinn sem gat ekki gefið kost á sér vegna meiðsla að þessu sinni var Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður NEC Nijmegen í Hollandi. Theodór Elmar Bjarnason og Björn Daníel Sverrisson fá tækifærið nú eftir góða frammistöðu gegn Svíum en Lagerbäck sagði leikinn bæði nýtast til að prófa unga leikmenn og slípa liðið til. „Þetta er blanda af hvoru tveggja,“ sagði Lagerbäck á blaðamannafundi KSÍ í gær. „Maður vill alltaf nota sitt sterkasta lið en það er líka mikilvægt að prófa nokkra hluti og gefa óreyndari leikmönnum mínútur. Samkvæmt minni reynslu þurfa leikmenn minnst 10-12 landsleiki til að komast almennilega inn í hlutina,“ bætti hann við. Ísland mætir einnig Austurríki ytra í lok maí og þá er unnið að því að finna liðinu fleiri æfingaleiki um það leyti. Fleiri tækifæri til að undirbúa liðið fyrir undankeppni EM 2016, sem hefst í haust, gefast ekki. Dregið var í riðla á dögunum og lenti Ísland í næststerkasta riðlinum að mati Lagerbäcks. Engu að síður er markmiðið að lenda í einu af tveimur efstu sætunum og öðlast þar með þátttökurétt í lokakeppninni í Frakklandi. „Ég heyrði mikið frá öðrum þjálfurum að enginn þeirra vildi fá Ísland úr fimmta styrkleikaflokknum. Kannski var það að einhverju leyti kurteisi en svo virðist sem önnur lið sýni okkur aðeins meiri virðingu nú.“ Lagerbäck segir það slæmt að hafa fengið Kasakstan úr sjötta og neðsta styrkleikaflokkinum. „Með fullri virðingu fyrir hinum liðunum í þeim flokki ættum við að geta fengið sex stig gegn þeim liðum. Það er alls ekki sjálfgefið gegn Kasakstan, auk þess sem að ferðalagið þangað er langt og leiðinlegt.“ Önnur lið í riðli Íslands eru Holland, Tyrkland, Tékkland og Lettland.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Handbolti Annar keppandi stal skíðum Fróða á HM Sport Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Handbolti Fleiri fréttir Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Bologna kom til baka gegn AC Milan Echeverri má loks spila fyrir Man City Valdi Laudrup besta fótboltamann sögunnar Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Sektin hans Messi er leyndarmál Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Sjá meira