Skoðun

Opið bréf til innanríkisráðherra

Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar
Sæl, Hanna Birna. Ég fylgdist með þér á Alþingi fimmtudaginn 13. febrúar sl. þar sem ræddar voru almenningssamgöngur og þá sérstaklega staða þeirra á Suðurnesjum. Það vill þannig til að ég hef fylgst vel með þessu máli, ég sit í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) sem er með samning við Vegagerðina um að sjá um almenningssamgöngur á Suðurnesjum.

Í kjölfar umræðunnar sat ég eftir með nokkrar spurningar sem mig langar til að fá svör við. Það kemur kannski ekki á óvart því þrátt fyrir orð þín á þingi um að fundarhöldin milli ráðuneytisins og SSS síðasta sumar hafi verið löng og ströng þá funduðum við bara einu sinni um þessi mál.

Snúið út úr áliti

Í ræðu þinni kom fram að þú teldir leiðina Flugstöð Leifs Eiríkssonar – Reykjavík ekki geta verið hluta af almenningssamgöngukerfinu þar sem það væri andstætt lögum en þú nefndir aldrei andstætt hvaða lögum. Nú grunar mig að þú vísir í álit Samkeppniseftirlitsins. Það er samt þannig að Samkeppniseftirlitið getur aðeins metið hvort samkeppnislög eru brotin.

Álit Samkeppniseftirlitsins var að fyrirkomulagið á akstursleiðinni hindraði samkeppni, engu að síður væri það ekki brot á samkeppnislögum þar sem þetta væru sérlög og því eiga samkeppnislögin ekki við. Samkeppniseftirlitið beindi því til ráðherra að breyta lögunum. Álit Samkeppniseftirlitsins væri það sama ef fyrirspurn myndi koma um fyrirkomulag áfengissölu á Íslandi enda hamlar sérleyfi ríkissins á þeim markaði samkeppni. Það þýðir samt ekki að framkvæmd áfengissölu á Íslandi sé ólögmæt.

Í bréfi Vegagerðarinnar til SSS er vísað í að EFTA hafi sagt fyrirkomulagið vera ólögmætt. Ég hef afrit af þessum bréfaskriftum. Þar kemur fram að EFTA hafi ætlað sér að skoða málið en innanríkisráðuneytið svarað á þá leið að lögunum yrði breytt. Því þyrfti ekki að skoða fyrirkomulagið og málinu var þá lokið. Það er því ekki hægt að halda því fram að EFTA hafi sagt fyrirkomulagið ólögmætt enda engin formleg niðurstaða heldur aðeins upphaf að athugun og bréfaskipti þar sem aldrei komu fram allar staðreyndir málsins.

Hvaða lög er verið að brjóta?

Þú hélst því einnig fram að þú teldir að sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum og sumir þingmenn væru að biðja þig um að brjóta lög. Ég ber mikla virðingu fyrir lögum og ég vil alls ekki biðja ráðherra um að brjóta lög. Því þætti mér vænt um ef þú gætir upplýst mig, og aðra sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum, hvaða lög erum við að biðja þig um að brjóta? Við höfum lagt fram ítarlega greinargerð um lög og dómafordæmi er segja að þetta fyrirkomulag sé löglegt. Við höfum samt aldrei fengið neitt frá þér sem hrekur þá greinargerð né upplýsingar um það gegn hvaða lögum fyrirkomulagið brýtur.

Ég bið þig um að útskýra fyrir okkur hérna megin við Reykjanesbrautina hvaða lög sérfræðingarnir í ráðuneytinu segja að Suðurnesjamenn séu að brjóta. Þannig virka nefnilega samræður milli aðila, einn leggur fram sín rök og síðan kemur hinn aðilinn með mótrök. Þetta er mjög svipað samræðustjórnmálum sem þú talaðir mikið um þegar þú varst í borgarstjórn. Ég er nokkuð viss um að slík aðferðafræði getur komið sér vel í innanríkisráðuneytinu.

Með vinsemd og virðingu í von um svör.




Skoðun

Sjá meira


×