Menning

Létt tónlist og upplífgandi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Klarinettuleikarinn Arngunnur segir Schubert-oktettinn fullan af gáska.
Klarinettuleikarinn Arngunnur segir Schubert-oktettinn fullan af gáska. Fréttablaðið/Valli
„Ég var að læra í Berlín og þar var algengt að það væru Matiné-tónleikar í hádeginu á sunnudögum. Þá gat fólk farið í brönsj annað hvort fyrir eða eftir. Þetta er því dálítið að evrópskri fyrirmynd,“ segir Arngunnur Árnadóttir, klarinettuleikari og ljóðskáld, um hádegistónleika Kammersveitar Reykjavíkur í Kaldalóni á sunnudaginn klukkan 12.15.



Þar er Schubert-oktettinn sem fluttur verður en hann telst til merkustu kammerverka tónlistarsögunnar.

„Þetta er mjög glaðleg tónlist, létt og upplífgandi,“ segir Arngunnur og kveðst vera að spila oktettinn í fyrsta skipti.

„Mér hefur alltaf þótt hann áhugaverður og fallegur og það hefur lengi verið á óskalistanum að spila hann,“ segir hún.

Flutningurinn tekur nærri klukkustund, en býst Arngunnur við að sveitin spili þetta mæta verk oftar og víðar?

„Það gæti verið. Hugmyndir eru uppi um að spila hann í vor, eða að minnsta kosti einhverja kafla úr honum á barnamenningarhátíð.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.