
Hún er einn þeirra norrænu hönnuða sem eiga muni á sýningunni Shop Show sem opnuð verður á efri hæð Hafnarborgar í Hafnarfirði á laugardaginn.
Sýningin á líka að opna augun fyrir ábyrgð neytenda þegar þeir velja vörur, að sögn Róshildar. „Ef allir hefðu sömu neysluvenjur og Íslendingar núna þyrftum við sjö hnetti. Við Vesturlandabúar munum ekki geta haldið svona áfram,“ segir hún ákveðin.
Róshildur er þekkt fyrir hönnun og vöruþróun leikfanga og skrautmuna úr fiskibeinum. „Ég nota fiskhausa sem ekki eru nýttir hér á landi í dag nema í mjöl og ég er að margfalda virði þeirra,“ bendir hún á. Hún segir ótrúlega stutt síðan við virtum skepnuna mun meira en nú. Bara 50-100 ár.
„Beinin voru leikföng og smíðaefni, dýrmætur efniviður af því við áttum ekki mikið, en nú eru öll bein grafin í jörð í þúsunda tonna vís. Við misstum tengingu við þetta efni í nærumhverfinu með tilkomu fjöldaframleiðslu úr plasti,“ segir hún.
Minnist líka á offramleiðslu heimsins á fatnaði með ódýru vinnuafli við stórvarasamar aðstæður. „Við erum komin út á ystu nöf og verðum að fara að breyta hugsunarhættinum,“ segir Róshildur sem er með vefsíðuna hugdetta.com þar sem hún kynnir vörur sínar og heimssýn.

Sýningin er unnin af Form Design Center í Malmö og ferðast um Norðurlöndin. Í Hafnarborg er henni fylgt úr hlaði með veglegri dagskrá þar sem viðfangsefni hennar eru krufin, meðal annars með samtölum við hönnuðina Petru Lilju, Brynhildi Pálsdóttur og Róshildi.
Bæði Shop Show og Hnallþóra í sólinni eru hluti af HönnunarMars 2014, enda liggur líka áhugaverð hönnun eftir listamanninn svissneska Dieter Roth.