Menning

Syngja þekkt lög eftir gömlu sveitungana

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Margrét S. Stefánsdóttir sópran, Ásgeir Eiríksson bassi, Sigurjón Jóhannesson tenór og Helga Rós Indriðadóttir sópran. Gróa Hreinsdóttir er meðleikari á píanó.
Margrét S. Stefánsdóttir sópran, Ásgeir Eiríksson bassi, Sigurjón Jóhannesson tenór og Helga Rós Indriðadóttir sópran. Gróa Hreinsdóttir er meðleikari á píanó. Mynd/Berglind Indriðadóttir
Lög eins og Lindin, Hallarfrúin, Bikarinn, Ætt' ég hörpu og Erla munu hljóma í Seltjarnarneskirkju og Hveragerðiskirkju á sunnudaginn í meðförum skagfirskra einsöngvara. Þeir syngja hver í sínu lagi og í dúettum og kvartettum.

Lögin eru öll eftir gamla Skagfirðinga sem voru fæddir í kringum aldamótin 1900, þá Eyþór Stefánsson, Jón Björnsson og Pétur Sigurðsson sem allir voru virkir í menningarlífi héraðsins.

Eyþór var organisti á Sauðárkróki, framarlega í leikfélaginu og stóð fyrir gerð minnismerkisins um Stephan G. Stephansson á Arnarstapa.

Jón var um áratugaskeið stjórnandi Karlakórsins Heimis. Pétur sem lést ungur var hógvær maður og hafði ætlað að henda fallega laginu við ljóð Stefáns frá Hvítadal um Erlu.

Tónleikarnir á sunnudaginn verða í Seltjarnarneskirkju klukkan 16 og í Hveragerðiskirkju klukkan 20.30.

Miðar eru seldir við innganginn á 2.500 krónur og enginn posi á staðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.