Menning

Menning, viðskipti, stjórnmál og gleði

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Anda Kuitse, frægasti trommudansari Grænlands, kemur fram á Grænlandsdögum, bæði í Melabúðinni og í Hörpu.
Anda Kuitse, frægasti trommudansari Grænlands, kemur fram á Grænlandsdögum, bæði í Melabúðinni og í Hörpu. Mynd: Hrafn Jökulsson
Grænlandsvinir úr ýmsum áttum ákváðu að slá upp hátíð og setja Grænland almennilega í sviðsljósið í nokkra daga,“ segir Hrafn Jökulsson, einn forsprakka Grænlandsdaga sem hefjast í Melabúðinni í dag. „Dagskráin kemur eiginlega inn á öll svið mannlegra samskipta; menningu, viðskipti, stjórnmál, tónlist, keppni, samstöðu og gleði.“



Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, mun setja Grænlandsdagana í Melabúðinni klukkan 16 í dag og staðsetningin vekur athygli, hvers vegna að hefja menningardagskrá í hverfisverslun? „Melabúðin er náttúrulega mikil menningarmiðstöð í Vesturbænum,“ segir Hrafn. „Og í dag og á morgun verður henni breytt í grænlenska búð þar sem boðið verður upp á ýmis matvæli og vörur frá Grænlandi auk grænlenskrar tónlistar og dans og sýndar ljósmyndir sem Ragnar Axelsson hefur tekið á Grænlandi.“



Hápunktur dagskrárinnar er hins vegar í Hörpu á sunnudaginn og hefst með Grænlandskynningu klukkan 14. Á eftir verða tónleikar þar sem fram koma Anda Kuitse, frægasti trommudansari Grænlands, og tríóið Appisimaar frá Kulusuk. Sérstakir gestir á tónleikunum eru Pálmi Gunnarsson og Bjartmar Guðlaugsson, sem Hrafn hikar ekki við að kalla Grænlandsvini. „Pálmi er til dæmis einhver reyndasti stangveiðimaður Grænlands og þeir hafa báðir mikla tengingu við landið.“



Dagskráin heldur áfram á mánudag, þegar haldið verður skákmót í Vin á vegum Hróksins og á þriðjudaginn er komið að stóru málþingi í Norræna húsinu þar sem framámenn úr atvinnulífi og stjórnmálum fjalla um möguleika og útfærslu á nánara samstarfi þjóðanna.



Hrafn er óhætt að kalla Grænlandsvin með stóru G-i, hann hefur verið þar með annan fótinn í áratug og á vart orð til að lýsa hrifningu sinni á landi og þjóð. „Náttúran þar er ólýsanlega fögur og þeir sem koma til Grænlands fá nær undantekningalaust Grænlandsveikina samstundis. Auk þess er þetta einhver dásamlegasta þjóð sem ég hef komist í kynni við. Grænlendingar eru svo blíðir og ljúfir í lund, örlátir og góðir gestgjafar. Þeir líta sérstaklega til Íslendinga, ekki bara sem nágranna heldur sem sinna bestu vina í veröldinni. Og nú þegar áhugi heimsins beinist í stórauknum mæli að Grænlandi vegna þeirra miklu náttúruauðlinda þá er gott fyrir þá að eiga vini sem ekki eru bara með græðgisglampa í augum.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×