Niðurstöður skýrslunnar byggi á óskhyggju Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 8. apríl 2014 00:01 Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður utanríkismálanefndar, segir túlkun á niðurstöðum byggjast á óskhyggju.
Birgi Ármannssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokks og formanni utanríkismálanefndar, sýnast ekki nýjar staðreyndir eða upplýsingar vera í nýrri Evrópuskýrslu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. „Mér sýnist margt í niðurstöðunum og túlkun á þeim byggja á dálítilli óskhyggju,“ segir Birgir. „Túlkunin ber vitni um að menn geri sér væntingar um að það sem óljóst er, varðandi sérlausnirnar, falli Íslendingum í vil yrði viðræðunum haldið áfram. Sú túlkun virðist eingöngu byggð á óljósum ummælum embættismanna í Brussel og þessar væntingar greina á milli þessarar skýrslu og skýrslu Hagfræðistofnunar.“ Skýrsluhöfundar kynna skýrsluna fyrir utanríkismálanefnd í dag. „Margt gefur tilefni til umfjöllunar og umræðu í nefndinni og ég tel að það sé vel þess virði að fara yfir skýrsluna og skoða hvaða forsendur liggja að baki ályktununum.“Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherraBreytir ekki afstöðu stjórnvalda „Það er gott að skýrslan sé komin fram. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki náð að kynna mér hana í ystu æsar en hef lesið samantekt og helstu niðurstöður," segir Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra. „Skýrslan bætir ekki miklu við það sem hefur komið fram en það kemur þó fram að ferlið hefur þyngst mjög frá því sem það var þegar Norðmenn voru einnig í ferlinu og þar hafði makríll og Icasave mikil áhrif. En annars sé ég ekkert nýtt í skýrslunni á þessum tímapunki sem breytir afstöðu stjórnvalda um að draga umsóknin tilbaka."Árni Páll Árnason, þingmaður SamfylkingarinnarSérlausnir höfðu verið viðurkenndar Í fyrirspurn Árna Páls Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar, kemur fram að honum þyki skýrslan vekja mikla athygli því að í henni komi fram með skýrum hætti að viðræður um aðild að Evrópusambandinu hafi verið í ágætisgangi og fengist hafði ágætisárangur í ferlinu sama við hvað sé miðað. „Ljóst er að sérlausnir höfðu verið viðurkenndar í ferlinu og því ekki hægt að halda því fram að útilokað sé að fá sérlausnir í aðildarumsóknarferlinu. Það kemur líka skýrt fram að hægt er að fá fullnægjandi lausnir fyrir sjávarútvegshagsmuni Íslands. En efnahagskaflinn hlýtur að vekja mesta athygli þar sem rakinn er sá mikli velferðarábati sem við mundum njóta með upptöku evrunnar sem alþjóðlega viðurkennds gjaldmiðils sem hægt er að eiga viðskipti með hér sem annars staðar." Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherraÓsamstaða í ríkisstjórn valdið töfum Í svari Bjarna Benediktssonar við fyrirspurn Árna Páls kemur fram að hann hafi ekki kynnt sér efni skýrslunnar nægilega vel en hann taki eftir því að það séu nokkrar meginniðurstöður komnar í umræðuna, að það hafi verið ágætisgangur í viðræðunum. „Gott og vel. Það gengur samt mun hægar en að var stefnt. Í öðru lagi segir víst einhvers staðar í skýrslunni að ósamstaða í ríkisstjórninni, ósamstaða um hvernig vinna ætti að framgangi mála í einstökum málaflokkum hafi valdið töfum, sem er athyglisvert, ekki síst í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað að undanförnu um hvort það sé yfir höfuð mikilvægt að ríkur stuðningur sé í ríkisstjórn við málið eða ekki. Sumir vilja halda því fram að það skipti bara engu máli.“Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustufréttablaðið/gvaSýnir að klára þurfi aðildarsamninginn„Það sem kemur þarna fram sýnir að það er mjög erfitt að segja til um það hvernig samning við munum fá, hvort samningurinn við ESB muni reynast þjóðinni til góðs eða ekki, því það er einfaldlega of mörgum spurningum ósvarað," segir Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu. „Þeim fáum við ekki svarað nema við klárum aðildarsamninginn í stað þess að tala í viðtengingarhætti og gefa sér forsendur. Eins og í sjávarútvegsmálum, enda hefur engin þjóð sótt um í ESB þar sem þau mál vega svona þungt í efnahag landsins. En við getum ekki lagt mat á heildarhagsmuni fyrr en við erum komin með öll þessi svör og þau fáum við með því að klára ferlið.“Össur Skarphéðinsson, þinmaður SamfylkingarinnarSamningar voru á býsna góðri leið„Meginniðurstaðan er sú að það mælir allt með því að viðræðunum verði haldið áfram,“ segir Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar. „Saman tel ég að þessi skýrsla og skýrsla Hagfræðistofununar sýni að það voru engin sérstök ljón í veginum sem ekki voru þekkt áður. Það voru ákveðnar spurningar sem þurfti að svara varðandi sjávarútvegsmálin – það má heita að það sé það eina óþekkta í þessu. Svörin við því fást ekki nema látið verði reyna á samning. Þess vegna finnst mér ljóst að það þurfi að klára viðræðurnar. En kannski er meginniðurstaðan sú að samningarnir voru á býsna góðri leið. Mikill undirbúningur sem var búið að vinna og talsverður skilningur sem var búið að ná.“Vigdís Hauksdóttir, þingmaður FramsóknarflokksinsByggt á nafnlausum embættismönnum „Ég er ekki búin að lesa skýrsluna, því hún var bara birt í [gær]morgun. En það sem ég geri alvarlegar athugasemdir við, er að sjálfsögðu sjávarútvegskaflinn sem byggður er upp á andlitslausum og nafnlausum embættismönnum á göngunum í Brussel,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þinkona Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar. „Þetta bara herðir mig frekar en hitt að telja hag Íslands betur borgið fyrir utan Evrópusambandið. Vegna þessara haldlausu raka sem komu hér fram. Ýmislegt sem ekki stenst og er hrakið beinlínis í skýrslu Hagfræðistofnunar þegar þessar tvær skýrslur eru lesnar saman.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu þar sem hann hafði ekki náð að kynna sér skýrsluna nægilega vel.
ESB-málið Tengdar fréttir Vigdís segir rök í ESB-skýrslu vera haldlaus "Mér finnst þessi gagnrýni afskaplega ómakleg og bið hana vinsamlega að lesa úttektina áður en hún kemur með þvílíkar yfirlýsingar," segir einn skýrsluhöfunda 7. apríl 2014 15:15 Ísland áhrifalaust með EES-samningum Pia Hanson, forstöðukona Alþjóðamálastofnunar, gagnrýndi EES-samninginn þegar hún kynnti skýrslu um Evrópumál. Hún sagði Ísland hafa innleitt tvo þriðju laga og reglna Evrópusambandsins nú þegar. 7. apríl 2014 09:27 Skýrslu Alþjóðamálastofnunar má lesa hér Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands hefur gefið út skýrslu um stöðu aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. 7. apríl 2014 08:53 Ísland hafði þegar náð fram sérlausnum og undanþágum Viðmælendur skýrslu Alþjóðamálastofnunar um aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið voru sammála um að viðræðurnar hafi gengið hratt og vel fyrir sig. 7. apríl 2014 09:49 Ekkert vit í að slíta Skýrsla Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands fyrir samtök á vinnumarkaði er mikilvægt innlegg í umræðuna um umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Nálgunin í skýrslunni er ólík þeirri sem var notuð í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ fyrir ríkisstjórnina, enda verkefninu stillt upp með öðrum hætti. Almennt er tónninn í þessari skýrslu jákvæðari hvað varðar möguleika Íslands á að ná hagfelldum samningi við ESB. 8. apríl 2014 07:00 Ísland hefur innleitt tvo þriðju af lögum ESB Höfundar skýrslu Alþjóðamálastofnunar telja að Ísland hafi þegar innleitt um tvo þriðjuhluta löggjafar Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn. 7. apríl 2014 11:36 Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland haldi eigin fiskveiðistjórnunarkerfi Í skýrslu Alþjóðamálastofnunar kemur fram að Íslendingar hættu að geta haldið eigin fiskveiðistjórnunarkerfi. 7. apríl 2014 10:04 Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Sjá meira
Vigdís segir rök í ESB-skýrslu vera haldlaus "Mér finnst þessi gagnrýni afskaplega ómakleg og bið hana vinsamlega að lesa úttektina áður en hún kemur með þvílíkar yfirlýsingar," segir einn skýrsluhöfunda 7. apríl 2014 15:15
Ísland áhrifalaust með EES-samningum Pia Hanson, forstöðukona Alþjóðamálastofnunar, gagnrýndi EES-samninginn þegar hún kynnti skýrslu um Evrópumál. Hún sagði Ísland hafa innleitt tvo þriðju laga og reglna Evrópusambandsins nú þegar. 7. apríl 2014 09:27
Skýrslu Alþjóðamálastofnunar má lesa hér Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands hefur gefið út skýrslu um stöðu aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. 7. apríl 2014 08:53
Ísland hafði þegar náð fram sérlausnum og undanþágum Viðmælendur skýrslu Alþjóðamálastofnunar um aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið voru sammála um að viðræðurnar hafi gengið hratt og vel fyrir sig. 7. apríl 2014 09:49
Ekkert vit í að slíta Skýrsla Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands fyrir samtök á vinnumarkaði er mikilvægt innlegg í umræðuna um umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Nálgunin í skýrslunni er ólík þeirri sem var notuð í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ fyrir ríkisstjórnina, enda verkefninu stillt upp með öðrum hætti. Almennt er tónninn í þessari skýrslu jákvæðari hvað varðar möguleika Íslands á að ná hagfelldum samningi við ESB. 8. apríl 2014 07:00
Ísland hefur innleitt tvo þriðju af lögum ESB Höfundar skýrslu Alþjóðamálastofnunar telja að Ísland hafi þegar innleitt um tvo þriðjuhluta löggjafar Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn. 7. apríl 2014 11:36
Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland haldi eigin fiskveiðistjórnunarkerfi Í skýrslu Alþjóðamálastofnunar kemur fram að Íslendingar hættu að geta haldið eigin fiskveiðistjórnunarkerfi. 7. apríl 2014 10:04