Menning

Túlkar heimaland fugla og friðsældar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Myndlistarmaðurinn Torfi sækir innblástur í íslenska náttúru, án þess þó að endurspegla raunveruleikann.
Myndlistarmaðurinn Torfi sækir innblástur í íslenska náttúru, án þess þó að endurspegla raunveruleikann. Fréttablaðið/Daníel
„Ég sæki innblástur í íslenska náttúru, tærleikann og tímaleysið sem þar er að finna, án þess þó að endurspegla raunveruleikann í myndunum mínum,“ segir Torfi Ásgeirsson myndlistarmaður. Ekki síst kveðst hann leitast við að túlka heimaland fugla og friðsældar.

Torfi heldur málverkasýningu í Galleríi Ormi í Sögusetrinu á Hvolsvelli um þessar mundir. Þar eru átján verk máluð með olíu á striga og talsverður fjöldi vatnslitamynda.

Torfi er menntaður í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og er starfandi myndlistarmaður. Hann hefur víða sýnt, meðal annars í Ásmundarsal, tvívegis í Safnahúsinu á Húsavík, í Hafnarhúsinu í Reykjavík og í Eiðisskeri á Seltjarnarnesi.

Spurður hvers vegna hann hafi valið Sögusetrið sem sýningarstað nú svarar hann:

„Ég hef alltaf gaman af að fara út á land og finnst við hæfi að kynna mig aðeins á Suðurlandinu. Rætur mínar eru samt fyrir norðan, á Halldórsstöðum í Laxárdal, þar átti ég heima til níu ára aldurs. Þá átti að fara að virkja Laxána og við fluttum á mölina.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×