Menning

Fjórir ólíkir listamenn í beinum útsendingum

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Kolbeinn Hugi Höskuldsson á fyrsta þáttinn sem sýndur verður í dag og kallast hann Spasm.
Kolbeinn Hugi Höskuldsson á fyrsta þáttinn sem sýndur verður í dag og kallast hann Spasm.
Frá New York er kominn listahópurinn E.S.P. TV sem hittir fyrir listamennina Ásdísi Sif Gunnarsdóttur, Kolbein Huga Höskuldsson, Helga Örn Pétursson og Rebekku Moran og fá áhorfendur að fylgjast með samtali þeirra í beinni útsendingu í Kling og Bang galleríi.



„E.S.P. TV er fyrirbæri frá New York sem fer gjarnan í samstarf með myndlistarmönnum og er með beinar útsendingar á netinu frá alls konar viðburðum,“ segir Elísabet Brynhildardóttir, einn meðlima Kling & Bang-hópsins. „Þannig að sýningin verður í rauninni eins og nokkurs konar upptökustúdíó.“



Útsendingarnar verða fjórar, einn listamaður í hverri. „Það bætist sem sagt smátt og smátt við sýninguna og markmiðið er sem sagt að búa til eitt stórt verkefni sem fjórir ólíkir listamenn koma að og vinna hver fyrir sig en myndar ákveðna heild þegar upp er staðið,“ segir Elísabet.

Sent er út beint á heimasíðu E.S.P. TV á slóðinni esptvnyc.com. á þessum tímum:



Episode #1 - Kolbeinn Hugi opnun fim 22.maí kl. 20:00 

Episode #2 - Ásdís Sif -opnun lau 24.maí kl. 17:00

Episode #3 - Rebekka Moran - opnun fim 29.maí kl.17:00

Episode #4 - Helgi Örn Pétursson Opnun og lokunarpartý lau 31.maí kl.17.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×