Menning

Hitað upp fyrir Bergmál í Háteigskirkju

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari, Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari, Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari, Carlos Caro Aguilera básúnuleikari, Grímur Helgason klarinettleikari og Kristján Karl Bragason píanóleikari.
Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari, Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari, Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari, Carlos Caro Aguilera básúnuleikari, Grímur Helgason klarinettleikari og Kristján Karl Bragason píanóleikari.
Á síðdegistónleikum í Háteigskirkju á morgun gefst tónlistarunnendum á höfuðborgarsvæðinu kostur á að heyra litríkt sýnishorn af dagskrá tónlistarhátíðarinnar Bergmáls sem fram fer á Dalvík í kring um sumarsólstöður. En hvaða fyrirbæri er Bergmál?

„Þetta er lítil sígild tónlistarhátíð sem við höfum verið með á Dalvík síðastliðin fimm ár,“ segir Grímur Helgason klarinettuleikari, einn skipuleggjenda Bergmáls. „Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Kristján Karl Bragason píanóleikari byrjuðu með hátíðina og ég kom svo inn í þetta með þeim. Við höfum verið að spila sígilda tónlist og svona aðeins út í dægurlög stundum og alltaf haldið upphitunartónleika í Reykjavík áður en við förum norður.“



Tónlistarhátíðin Bergmál verður haldin dagana 19. til 22. júní í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Tónverkin sem flutt verða á þrennum tónleikum spanna vítt litróf, allt frá djúpum þönkum Johannesar Brahms til skemmtitónlistar Franz Lehár með viðkomu í rússneskum þjóðsagnaheimi, París aldamótanna og íslenskri sumarnæturkyrrð, að sögn Gríms.



„Tónleikarnir í Háteigskirkju eru síðan svona „best of“ af því sem flutt verður fyrir norðan og þar komum við fram allir flytjendurnir fyrir utan Ellu Völu Ármannsdóttur hornleikara og Margréti Hrafnsdóttur sópransöngkonu,“ bætir hann við.



Tónleikarnir í Háteigskirkju hefjast klukkan 17 á morgun og hátíðin sjálf hefst síðan þann 19. júní með opnunartónleikum Bergmáls í Bergi klukkan 20. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×