Krefst ekki afsagnar al Malikis forseta Guðsteinn Bjarnason skrifar 19. júní 2014 18:49 Íraskur hermaður leiðbeinir sjálfboðaliðum, sem flykkst hafa til liðs við stjórnina undanfarið. NordicPhotos/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin reiðubúin til að senda allt að 300 manns til Íraks. Hlutverk þeirra yrði að gefa íraska hernum ráð í baráttuni við herskáa íslamista, sem hafa náð stórum hluta landsins á sitt vald. Þetta kom fram á blaðamannfundi í Hvíta húsinu fyrr í kvöld. Obama sagði hins vegar að ekki kæmi til greina að bandarískir hermenn færu að taka þátt í bardögum í Írak. Hann tók jafnframt fram að hann krefðist þess ekki að Núri al Maliki forseti segi af sér, en fullyrt hafði verið í fjölmiðlum að hann setti þetta skilyrði fyrir aðstoð Bandaríkjanna. Hann orðaði það hins vegar þannig að Bandaríkin myndu starfa með íröskum stjórnvöldum, ef þau taka tillit til allra þjóðernishópa Íraks. Helstu þjóðernishóparnir þar í landi eru þrír: sjía-múslimar, súnní-múslimar og kúrdar. Maliki forsætisráðherra er sjía-múslimi og hefur verið sakaður um að draga taum sinna manna umfram annarra. Velgengni hinna herskáu íslamista á svæðum súnní-múslima er að hluta rakin til þess að almenningur þar hafi verið orðinn harla ósáttur við Al Maliki, og geti sumir jafnvel frekar sætt sig við að lúta stjórn öfgamanna en al Malikis. Obama lagði jafnframt áherslu á að mikilvægt væri að fleiri lönd í þessum heimshluta, þar á meðal Íran, létu til sín taka.
Mest lesið Vaknaði með tíu ósvöruð símtöl og frétti svo af uppsögninni Innlent Gámur fluttur án leyfis eiganda og öllu stolið úr honum Innlent Skilur ekki hægagang dómsmálaráðuneytisins Innlent Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys Innlent Tvö þúsund skora á Guðrúnu að hætta við brottvísunina Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Kirkjan skaðabótaskyld gagnvart Kristni Innlent Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent „Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“ Innlent Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Erlent Fleiri fréttir Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sjá meira