Menning

Fegra Breiðholtið með list

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Álftahólar 4-6: Þessi mynd eftir Erró mun án efa setja svip á blokkina í breiðholti.
Álftahólar 4-6: Þessi mynd eftir Erró mun án efa setja svip á blokkina í breiðholti.
Myndlistarmaðurinn Erró hefur samþykkt að gefa Reykjavíkurborg höfundarverk sitt en borgarráð hefur samþykkt að setja upp tvær veggmyndir eftir Erró í efra Breiðholti.

Annars vegar er um að ræða á bogadreginn vegg íþróttahússins við Austurberg, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, og hins vegar á vesturgafl íbúðablokkarinnar við Álftahóla 4 – 6.

„Við erum mjög spennt fyrir þessu verkefni. Það er mjög góð reynsla af verkum sem þessum erlendis og svo er þetta náttúrlega risastórt verk. En Erró hefur alltaf verið mjög rausnarlegur listamaður þegar Reykjavíkurborg er annars vegar og nota ég tækifærið og þakka honum fyrir það,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Austurberg: Þessi bogadregni veggur við íþróttahúsið í Austurbergi á eftir að vekja athygli.
Erró er heiðursborgari Reykjavíkur og hefur í gegnum tíðina sýnt Reykjavíkurborg og Listasafni Reykjavíkur rausnarskap með því að gefa safninu verk sín. Verk eftir Erró hafa verið sýnd á mörgum helstu söfnum Evrópu og víða um heim. Veggmyndir hans prýða merkar byggingar í mörgum borgum og hafa mikið aðdráttarafl og aukið umhverfisgæði þar sem þær hafa verið settar upp.

Áætlað er að kostnaður vegna framleiðslu og uppsetningar verði um 38,8 m.kr. og er það Listasafn Reykjavíkur sem hefur umsjón með undirbúningi og framkvæmd verksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.