Menning

Opnar skúlptúrasýningu á netinu

Baldvin Þormóðsson skrifar
Una Björg Magnúsdóttir útskrifaðist úr Listaháskólanum í vor.
Una Björg Magnúsdóttir útskrifaðist úr Listaháskólanum í vor. mynd/aðsend
„Hugmyndin er að það sé enginn staður sem fólk þarf að fara á, fólk getur bara séð sýninguna heima hjá sér,“ segir Una Björg Magnúsdóttir, en hún opnar sýningu sína Wavering á vefsíðunni artclickdaily.info í dag.

Una útskrifaðist úr myndlist við Listaháskóla Íslands í vor en hún vinnur mest með skúlptúra og inniheldur sýning hennar rafræna skúlptúra.

„Wavering er bæði vísun í bylgju og eitthvað sem hörfar og minnkar,“ segir Una.

„Skúlptúrarnir eru sem sagt fánar sem ég hef unnið með í öðru formi en eru núna á netinu þannig að þetta eru svona stafrænir fánar,“ segir Una en galleríið sem hýsir sýninguna er vefsíða sem Ívar Glói Gunnarsson og Brynjar Helgason stofnuðu fyrir ári og verður þetta áttunda sýningin sem sett er upp í netgalleríinu.

„Þetta er annar vettvangur, ekki hefðbundið þar sem allir fara á einhvern stað og hanga þar, heldur getur fólk bara farið inn á netinu,“ segir Una en sýningin verður opnuð klukkan 12.00 í dag á artclickdaily.info.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.