Menning

Semur tónlist á selló, tölvu og effektatæki

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Kristín Lárusdóttir, Selló-Stína, er á ferð um landið og kemur fram á Akureyri í kvöld.
Kristín Lárusdóttir, Selló-Stína, er á ferð um landið og kemur fram á Akureyri í kvöld. Vísir/Valli
Sellóleikarinn Kristín Lárusdóttir, betur þekkt sem Selló-Stína, heldur í kvöld tónleika í Litla-Garði á Akureyri. Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð Kristínar um landið en hún hófst á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði í síðustu viku. Kristín flytur nær eingöngu eigin tónlist sem hún segir vera undir áhrifum frá náttúrunni. „Tónlist mín er innblásin af íslenskri náttúru, sögu þjóðarinnar og tónlistararfi. Ég notast við tvö selló, tölvu og effektatæki þegar ég kem fram. Sum verkin mín eru flutt í „quatrophonic“,“ segir Kristín.



Kristín er klassískt menntaður sellóleikari og hefur að auki menntað sig í barokktónlist, gömbuleik og djassi. Síðustu árin hefur raftónlist fengið aukinn sess í tónlistarsköpun hennar. „Ég lauk framhaldsprófi í raftónlist vorið 2013 og gaf haustið eftir út mína fyrstu sólóplötu, Hefring. Ég sá einnig sjálf um upptökur og hljóðblöndun,“ segir hún og bætir því við að hvorki sé algengt að heyra tónlist flutta á selló og tölvu né í quatrophonic-kerfi.



Tónleikarnir í Litla-Garði í kvöld hefjast klukkan 21. Fram undan eru einnig tónleikar Kristínar í Stálsmiðjunni í Neskaupstað og Mengi í Reykjavík. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×