Menning

Ástir og óræð tengsl í tónlistarsögunni

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Margrét og Hrönn lærðu báðar í Stuttgart og hafa haldið fjölda tónleika heima og erlendis.
Margrét og Hrönn lærðu báðar í Stuttgart og hafa haldið fjölda tónleika heima og erlendis. Mynd/Úr einkasafni
„Maður leitast við að vera með einhvern rauðan þráð þegar svona dagskrá er sett saman og ástin er sígild,“ segir Margrét Hrafnsdóttir söngkona um efni tónleikanna Ástir þvers og kruss sem verða í Listasafni Sigurjóns á Laugarnestanga annað kvöld klukkan 20.30.



„Við ætlum að rýna ofan í tóna og texta laganna og ímynda okkur undir hvaða áhrifum tónskáldin og textahöfundarnir hafa verið,“ segir Margrét.

Hún nefnir sem dæmi að ljóðskáldið Mathilde Wesendonck sé þekkt fyrir að hafa veitt Richard Wagner innblástur við tónsmíðar árum saman og auðvelt sé að ímynda sér eitthvað meira á milli þeirra því hugsmíðar þeirra smjúgi saman þannig að það líkist ástarsambandi. Samt sé það ekki opinbert, enda Wagner kvæntur.

Á tónleikunum sem hefjast klukkan 20.30 annað kvöld ætlar Margrét að leiða áheyrendur inn í sögu ljóða og laga sem þær stöllur flytja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×