Menning

Þetta verður hugljúft

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Við skiptumst á að spila sóló á tónleikunum,“ segir Ágústa María sem hér er þriðja frá hægri.
"Við skiptumst á að spila sóló á tónleikunum,“ segir Ágústa María sem hér er þriðja frá hægri.
„Við spilum meðal annars tvo fiðlukonserta Vivaldis og nokkra kafla af Vatnamúsík Händels,“ segir Ágústa María Jónsdóttir fiðluleikari þegar hún er beðin að lýsa í nokkrum orðum tónleikum strengjasveitarinnar Spiccato í Dómkirkjunni í kvöld sem hefjast klukkan 20.

„Svo spilar Hlíf Sigurjónsdóttir Gluck-melódíuna,“ heldur Ágústa María áfram og tekur fram að það séu líka einleikarar í Vivaldi.

„Við skiptumst á að spila sóló á tónleikunum,“ segir hún og bætir við að fleira vinsælt og flott efni verði leikið frá barokktímabilinu.

„Þetta verður hugljúft, mest rólegt en Vivaldi er líflegur líka,“ segir Ágústa María og telur tónleikana taka um klukkutíma.

 

Strengjasveitina Spiccato skipa auk Ágústu Maru þau Dóra Björgvinsdóttir, Hlíf Sigurjónsdóttir, Maria Weiss, Martin Frewer, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Sarah Buckley, Sesselja Halldórsdóttir, Arnþór Jónsson, Lovísa Fjeldsted og Páll Hannesson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.