Flutt heim í gleymdan gimstein Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 6. september 2014 10:00 mynd/Gísli Kristjánsson
Tónlistarkonan Elíza Geirsdóttir Newman er komin heim úr langri útlegð; heim í Hafnir Hollywood, eins og hún kallar paradís æskuára sinna. Þar poppar hún á kósíkvöldum og nýtur tilverunnar með sínum heittelskaða og ársgamalli dóttur þeirra. Elíza stígur á svið í Kirkjuvogskirkju í Höfnum, Reykjanesbæ, á morgun, sunnudag, klukkan 16. Þar mun hún flytja gömul og ný lög frá tuttugu ára ferli sínum, allt frá Kolrössu krókríðandi til Eyjafjallajökuls og frumflytja splunkunýtt efni. Aðgangur er ókeypis en frjáls framlög fara til styrktar viðhalds á Kirkjuvogskirkju.Hvað er það sem þú gerir alltaf um helgar? Ég drekk mikið kaffi, hlusta á tónlist og er í náttfötunum fram eftir degi.Hvar finnst þér best að vera um helgar? Heima er best.Hvað ætlar þú að gera sérstakt um þessa helgi? Í dag verð ég að æfa mig og búa mig undir tónleikana í Kirkjuvogskirkju og svo kíki ég á alls konar skemmtilegt sem verður í boði á Ljósanótt. Þar langar mig til dæmis að kaupa einhverja flotta list á þeim fjölmörgu sýningum sem verða í boði um helgina.Vakirðu fram eftir um helgar? Ég vaki eiginlega alltaf of lengi og myndi vaka enn þá lengur ef ég væri ekki með eina fjöruga eins árs dömu sem þykir gaman að vakna klukkan sex á morgnana!Ertu árrisul að eðlisfari eða sefurðu út? Ég elska að sofa út en get það ekki lengur þar sem dóttirin vekur mig í miklu stuði eldsnemma á hverjum morgni. Henni er slétt sama hvort það er helgi eða ekki.Hver er draumamorgunverðurinn? „Full English Breakfast, please.“Hvernig er dæmigert laugardagskvöld í þínu lífi? Bara að hafa það náðugt heima, horfa á bíómynd og slappa af.Ertu með nammidag og hvert er uppáhaldssælgætið þitt? Hjá mér er nammidagur á hverjum degi en ég er að reyna að temja það niður í einn dag í viku og gengur misvel. Uppáhaldsnammið er Þristur og flest allt súkkulaði og sterkt nammi, held ég. Það breytist þó eftir því hversu svöng ég er þegar ég labba fram hjá nammihillum búðanna.Hvað maularðu í sjónvarpssófanum á kósíkvöldi? Súkkulaði, saltstangir og gamla góða poppið sem ég poppa í potti.Heldurðu hvíldardaginn heilagan? Ég reyni að slaka á en það virkar ekki alltaf sem skyldi.Ferðu til kirkju eða hlustar á útvarpsmessuna á sunnudögum? Nei, en ég fer til kirkju á morgun til að spila.Hvað verður með sunnudagskaffinu og með hverjum drekkurðu það? Best er að fá eitthvað heimabakað frá húsbóndanum Gísla; hann er öflugur í bakstrinum. Ég drekk sunnudagskaffið með honum og Sölku Sigurlilju dóttur okkar sem fær sér mjólkursopa. Kannski kíkja svo pápi gamli og hans frú við.Til hvers eru helgarfrí, að þínu mati? Til að eiga tíma með fjölskyldunni, leika við dóttur mína, tralla í tónlist og njóta náttúrunnar allt í kringum mig.Hvað er annars að frétta af þér, Elíza? Allt gott að frétta. Ég er flutt í sveitina við sjóinn, Hafnir Hollywood, og það er alveg yndislegt.Hvað ertu að bralla þessa dagana? Ég er nýbyrjuð að kenna tónlist í Háaleitisskóla á Ásbrú og það er ansi fjörugt. Svo er ég að vinna á fullu að nýrri plötu sem verður fjórða sólóplatan mín og stefni á að gefa hana út snemma á næsta ári. Svo var ég að gefa út nýtt lag sem heitir Flöskuskeyti og er byrjað að hljóma í útvarpinu þessa dagana.Af hverju settistu að í Höfnum? Af því ég vissi ekki hvað ég saknaði hafsins og víðáttunnar mikið fyrr en ég flutti til Hafna eftir margra ára búsetu erlendis. Nú er ég svo sannarlega komin heim. Ég á margar tengingar við Hafnir; pabbi minn, Geir Newman, er alinn þar upp og í Höfnum eyddi ég miklum tíma sem barn. Hér hefur mér alltaf liðið mjög vel í Höfnum sem eru kannski gleymdur gimsteinn á Reykjanesinu.
Mest lesið Miðaldra kveikjur: Hlutir sem benda til þess að þú sért miðaldra Lífið Einhleypan: Vandræðalegt þegar þeir eru giftir eða í sambandi Lífið Stjörnulífið: Ástin, afmæli og stórir draumar Lífið Óskarsverðlaunahafi óléttur í annað sinn Lífið „Finnst oft eins og ég hafi drukkið sorgina með móðurmjólkinni“ Lífið Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni Tíska og hönnun Ljúffeng flensubanasúpa Lífið Allt í búðinni í boði - gjafabréf frá Maí stórsniðug jólagjöf Lífið samstarf Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Lífið Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur Lífið Fleiri fréttir Bölvað ves að ganga blindur um Berlín Ljúffeng flensubanasúpa „Finnst oft eins og ég hafi drukkið sorgina með móðurmjólkinni“ Stjörnulífið: Ástin, afmæli og stórir draumar Miðaldra kveikjur: Hlutir sem benda til þess að þú sért miðaldra Óskarsverðlaunahafi óléttur í annað sinn Einhleypan: Vandræðalegt þegar þeir eru giftir eða í sambandi Bein útsending: Bingó Blökastsins Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Sjá meira