Menning

Atar líkamann út í málningu

Silja Hinriksdóttir myndlistarkona.
Silja Hinriksdóttir myndlistarkona. Vísir/Brink
„Pælingin á bak við verkin er helst skynfærin okkar og hvað snerting er okkur mikilvæg. Skynjunin er eitt af því fyrsta sem við þróum eftir fæðingu og er það síðasta sem við missum. Hún er okkur svo mikilvæg bæði fyrir þroska og geðheilsu,“ segir Silja Hinriksdóttir myndlistarkona, sem er nýflutt heim til Íslands eftir fjögurra ára myndlistarnám í London við University of the Arts.

Verkin vinnur hún þannig að hún þrýstir líkama sínum í málningu sem hún þrykkir svo á striga. Hún vinnur mikið með mismunandi áferð á striganum og er hann ekki endilega rennisléttur, heldur er búið að krumpa hann eða brjóta saman. Á sýningunni eru ekki einungis málverk heldur hefur Silja einnig gert lampaskerma sem hún kallar fingraverk.

textíll og litir hafa alltaf heillað silju
„Á þá þrykki ég með fingrunum og geri mismunandi munstur,“ segir Silja, Innblástur fær hún úr íslenskri náttúru og þá sérstaklega við litasamsetningu og áferð í verkum.

Framtíðina segir Silja óráðna, en hún ætlar að halda áfram að vinna að sinni list og halda fleiri sýningar, jafnvel með fleiri listamönnum.

Sýning Silju heitir Skynfæri og verður opnuð í Gróskusalnum eða gamla Betrunarhúsinu á Garðatorgi, Garðabæ, fimmtudaginn 11. september kl 18. Sýningin verður opin yfir helgina frá klukkan 12-18.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.