Menning

Þráhyggja fyrir leiðbeiningum

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Rakel McMahon. „Kveikjan að sýningunni er að ég hef átt mjög erfitt með að fara eftir svona leiðbeiningum.“
Rakel McMahon. „Kveikjan að sýningunni er að ég hef átt mjög erfitt með að fara eftir svona leiðbeiningum.“ Fréttablaðið/Stefán
Rauði þráðurinn, í bókstaflegri merkingu, í þessari sýningu er þráhyggja og sýningin er öll rauð,“ segir Rakel McMahon um sýninguna Red Direction sem hún opnar í Týsgalleríi í dag klukkan 17.



„Ég hef mikið verið að sanka að mér leiðbeiningum af ýmsum toga síðustu árin; flugvélaleiðbeiningum frá ýmsum flugfélögum, klassískum IKEA-leiðbeiningum, sem hafa reynst mér erfiðar, og fleiru. Kveikjan að sýningunni er að ég hef átt mjög erfitt með að fara eftir svona leiðbeiningum, þannig að mín leið er að rýna í þessar skýringarmyndir sem í þeim eru, skoða listgildi þeirra og setja þær í nýtt samhengi.“



Titill sýningarinnar er Red Direction og auk teikninganna verður flutt tónverk eftir eiginmann Rakelar, Einar Tönsberg. „Hljóðverkið gefur tóninn fyrir sýninguna,“ segir Rakel.

„Það er með texta og tvíræðni titils sýningarinnar er áberandi í honum.“



Rakel hefur unnið mikið með kynhlutverk og staðalímyndir í verkum sínum og segir að það þema sé undirliggjandi í þessari sýningu líka, þótt það sé ekki útgangspunkturinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.