ESB-umsókn verði afturkölluð Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. október 2014 12:00 Hanna Birna Kristjánsdóttir vísir/daníel
Hanna Birna Kristjánsdóttir telur rétt að draga til baka aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Þetta kom fram í máli hennar á fundi með Sambandi eldri sjálfstæðismanna. Hanna Birna, sem er varaformaður Sjálfstæðisflokksins, var gestur á fundinum. Á þingmálaskrá Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra, sem finna má á vef stjórnarráðsins, er tillaga til þingsályktunar um að draga til baka umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Þar kemur fram að tímasetning framlagningarinnar, ef til kemur, liggi ekki fyrir. Gunnar Bragi lagði fram slíka tillögu á Alþingi síðasta vetur. Tillagan olli miklu deilum á þinginu og varð til þess að þingfundir drógust langt fram á nótt um nokkurra daga skeið. Eftir að tillaga Gunnars Braga leit dagsins ljós lögðu Píratar fram ályktun um að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um það hvort halda ætti áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þingmenn Vinstri grænna lögðu einnig fram tillögu um að efnt skuli til þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir lok kjörtímabilsins. Hanna Birna hefur áður lýst því yfir að hún teldi rétt að slíta viðræðum við Evrópusambandið. Það sagði hún meðal annars í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgunni í nóvember 2012, fyrir síðustu alþingiskosningar. Aðildarviðræður við Evrópusambandið hófust formlega 16. júlí 2009 í tíð ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og VG. Þessir sömu flokkar gerðu hlé á viðræðunum.
Alþingi Mest lesið „Þetta eru í rauninni mjög sorglegar niðurstöður“ Innlent Joe Biden með Covid Erlent Sautján milljóna króna greiðslan vekur hneykslan Innlent Hinn látni í Suðursveit ungur pólskur maður Innlent Hefja viðgerðir þó það gæti gosið á næstu dögum eða vikum Innlent Þrettán þúsund krónur fyrir nótt í tjaldi Innlent Dósent við HÍ „óskaði þess að árásarmaðurinn hefði hitt“ Innlent Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Innlent Samfélagið þurfi á börnum að halda Innlent Dvaldi lengi í Engey áður en hún synti til baka í flasið á hvalaskoðunarskipi Innlent Fleiri fréttir „Þetta eru í rauninni mjög sorglegar niðurstöður“ Hefja viðgerðir þó það gæti gosið á næstu dögum eða vikum Samfélagið þurfi á börnum að halda Viðgerðir á meðan búist er við gosi og skötuveisla um hásumar Hinn látni í Suðursveit ungur pólskur maður Hengdu Palestínufána á Hallgrímskirkjuturn Mótmælir gjaldtöku við Egilsstaðaflugvöll með gagnkvæmu skutli Sautján milljóna króna greiðslan vekur hneykslan Dósent við HÍ „óskaði þess að árásarmaðurinn hefði hitt“ Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Þrettán þúsund krónur fyrir nótt í tjaldi Íslendingur á sextugsaldri fannst látinn í Taílandi Dvaldi lengi í Engey áður en hún synti til baka í flasið á hvalaskoðunarskipi Metfjöldi sérsveitarmanna á Þjóðhátíð í sumar Ákærður fyrir að stinga mann í heimahúsi í Súðavík Veitingamenn berjist í bökkum Stórhættulegur framúrakstur á Holtavörðuheiði Íslensk kona og fjölskylda hennar á sjúkrahúsi eftir árás á Krít Diljá Mist segir hræsni einkenna íslenska femínista Sérsveit þurfti ekki að skerast í leikinn vegna ferðamanns á tjaldstæði Frjósemi á Íslandi aldrei verið minni en í fyrra Telur ekki trúlegt að komið verði á samkomutakmörkunum Laðar fjárfesta að til að halda Skaganum á Skaganum Þrjár líkamsárásir, vinnuslys og mannlaus bíll á ferð „Væri ekki að fara ef ekki væri fyrir góðvild fólks“ Fyrsta heimasmíðaða útvarp landsins til sýnis „Stanslaus barátta við það að vera ekki með menn í einangrun“ Grátlegt að veiðarnar séu kallaðar af meðan sjórinn er fullur af fiski „Covid er alltaf einhvern veginn með okkur“ Þyrlan flutti slasaða göngukonu Sjá meira
Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Innlent
Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Innlent