Menning

Átján örleikrit sýnd

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þorgeir leikstýrir tveimur stuttverkum í dag sem leikfélagið Hugleikur teflir fram.
Þorgeir leikstýrir tveimur stuttverkum í dag sem leikfélagið Hugleikur teflir fram. Fréttablaðið/Stefán
„Það verða fimmtán örleikrit frá sjö íslenskum áhugaleikfélögum sýnd í dag í Funalind 2 í Kópavogi. Auk þess koma þrjú frá Færeyjum,“ segir Þorgeir Tryggvason, einn þeirra sem halda utan um stuttverkahátíð undir merkjum Norður-Evrópska áhugaleikhússambandsins, NEATA.

Hann er líka leikstjóri tveggja verkanna sem Hugleikur teflir fram.

Hátíðin byrjar klukkan 13 í dag og endar á sameiginlegum hátíðarkvöldverði í Hlégarði í Mosfellsbæ.

Þorgeir segir leikverkin vera frá þremur upp í fimmtán mínútur að lengd og að umgjörðin sé einföld.

„Mörg þessara leikrita verða til á námskeiðum innan áhugaleikfélaganna, þar er lögð rækt við þetta form. Frændur okkar í Færeyjum hafa líka tileinkað sér stuttverkasmíð á síðustu árum og þetta er í þriðja sinn sem þeir taka þátt í svona hátíð með okkur, ein þeirra var í Færeyjum.“

Hann upplýsir líka að íslensku verkin fari í leikritabanka Bandalags íslenskra leikfélaga.

Þegar sýningum lýkur síðdegis í dag sjá Sigríður Lára Sigurjónsdóttir og Karl Ágúst Úlfsson um gagnrýni og umræður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.