Menning

Leikhúskenndir tónleikar á alvörutímum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Þetta eru voða skemmtileg lög og textarnir líka,“ segir Jóhanna um dagskrána í Iðnó annað kvöld.
"Þetta eru voða skemmtileg lög og textarnir líka,“ segir Jóhanna um dagskrána í Iðnó annað kvöld. Fréttablaðið/Ernir
„Ég er í því að lifa núna eins og hver dagur sé sá síðasti,“ segir Jóhanna Þórhallsdóttir hlæjandi og kveðst þar vera undir áhrifum frá textum á nýja diskinum sínum, sem ber titilinn Söngvar á alvörutímum.

Þá texta segir hún meðal annars eftir Þorvald Þorsteinsson og Guðmund Sigurðsson, tengdaföður hennar, sem var kunnur revíuhöfundur.

Hún ætlar að syngja þessa texta við eigin lög á tónleikum í Iðnó annað kvöld, sunnudag, ásamt fleiri snillingum og þar verða líka lög úr söngleikjum og leikritum.

„Þetta er dálítið leikhúskennt prógramm og þess vegna finnst mér svo gaman að vera í Iðnó, það er aðalsöngleikhúsið í mínum huga og heldur vel utan um svona tónleika,“ segir söngkonan.

Á sviðinu með Jóhönnu verða hinn finnski harmónikuleikari Matti Kallio, Kjartan Valdimarsson píanisti, Gunnar Hrafnsson sellóleikari, Jóhann Hjörleifsson trommuleikari, auk þess sem Sigurður Flosason mætir með saxófóninn og Egill Ólafsson tekur lagið með henni.

„Við Egill vorum samtímis í Hamrahlíðarkórnum í denn en höfum aldrei sungið tvö saman áður,“ segir hún.

Jóhanna getur þess líka að Gunnhildur, dóttir hennar, Einarsdóttir syngi með henni og vinkonur tvær, Thelma Hrönn og Lilja Dögg.

„Síðan verður leynigestur,“ en að sjálfsögðu ljóstrar hún engu upp um hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.