Menning

Sunna og Ornstein saman

Sunna Gunnlaugs
Sunna Gunnlaugs
Djasspíanistinn Sunna Gunnlaugs er nýkomin frá Berlín þar sem hún lék dúó-tónleika með þýska píanistanum Juliu Hülsmann fyrir fullu húsi. Nú tekur hún á móti hollenska bassaklarinettuleikaranum Maarten Ornstein og munu þau tvö halda þrenna tónleika hér á landi í vikunni.



Maarten Ornstein starfrækir hljómsveitina Dash í Amsterdam og sækir í rætur eþnískrar tónlistar frá ýmsum svæðum auk hins hefðbundna og óhefðbundna í djasstónlistinni. Sunna og Maarten ná saman á einstaklega næman máta í túlkun á eigin tónsmíðum með skvettu af Thelonious Monk, Bill Frisell og aldagamalli tyrkneskri menningu.



Fyrstu tónleikar þeirra verða í Múlanum á Björtu loftum í Hörpu klukkan 21 í kvöld. Annað kvöld verða þau í Bergi í Reykjanesbæ klukkan 19.30 og síðustu tónleikarnir verða í Tónbergi á Akranesi klukkan 20 á föstudagskvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.