Menning

Elítan í norrænum barnabókmenntum

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Tinna Ásgeirsdóttir: „Allir fyrirlesarar á hátíðinni eru í fremstu röð á sínu sviði. Þetta verður rosaflott.“
Tinna Ásgeirsdóttir: „Allir fyrirlesarar á hátíðinni eru í fremstu röð á sínu sviði. Þetta verður rosaflott.“ Vísir/Ernir
Alþjóðlega barnabókahátíðin Mýrin hefst í sjöunda sinn í Norræna húsinu á morgun og stendur fram á sunnudag. Á henni koma fram á fjórða tug íslenskra og erlendra rithöfunda. Stór sýning byggð á norrænum barnabókmenntum er haldin í tengslum við hátíðina og stendur yfir í sjö vikur. Á hátíðinni verður einnig haldið málþing um framtíð barnabókmennta, ýmsar málstofur, sköpunarsmiðjur og fleira og fleira.



„Þetta er þétt dagskrá,“ segir Tinna Ásgeirsdóttir verkefnastjóri. „Á morgun verður dagskrá fyrir skólahópa, málstofur og stefnumót við höfunda, á föstudag er málþing um framtíðina í barnabókmenntum sem stendur allan daginn og þarf að skrá sig á. Á laugardag verða fleiri málstofur, meðal annars málstofa um það hvernig rithöfundar og barnabókmenntir nálgast viðkvæm viðfangsefni á borð við dauðann og önnur um það sem er tabú að skrifa um í barnabókum á hverjum tíma undir yfirskriftinni Tabú og tíðarandi, sem ég held að verði mjög skemmtileg.“



Á sunnudaginn verða svo upplestrar, leiðsögn og myndasmiðja fyrir börn og foreldra. „Það er rétt að undirstrika að smiðjurnar eru allar hugsaðar sem fjölskylduviðburðir,“ segir Tinna. „Við hvetjum foreldra til að taka þátt í þeim með börnum sínum.“



Á laugardag og sunnudag munu þeir höfundar sem eru tilnefndir í ár til Barna- og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs lesa upp úr bókum sínum frá klukkan 13 til 15. „Þetta er elítan í barnabókmenntum á Norðurlöndunum í dag,“ segir Tinna. „Og allir fyrirlesarar á hátíðinni eru í fremstu röð á sínu sviði. Þetta verður rosaflott.“



Allar upplýsingar um viðburðina og tímasetningar þeirra er að finna á heimasíðu hátíðarinnar myrin.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.