Menning

Styrkja fátæk börn á Indlandi

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Guðný Guðmundsdóttir er ein þeirra sem fram koma á tónleikunum í kvöld. Hér leikur hún fyrir börn á Indlandi.
Guðný Guðmundsdóttir er ein þeirra sem fram koma á tónleikunum í kvöld. Hér leikur hún fyrir börn á Indlandi. .Mynd úr einkasafni.
Árlegir styrktartónleikar Vina Indlands verða haldnir í kvöld klukkan 20 í Sigurjónssafni í Laugarnesi. Fram koma Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Jane Ade Sutarjo píanóleikari, sem leika vinsæl og sígild verk meðal annars eftir Kreisler, Paganini og Gunnar Þórðarson. Þórunn Erlu Valdemarsdóttir les frumort ljóð og að lokum mun Magga Stína koma fram ásamt vinum.



„Vinir Indlands er lítið félag sem var stofnað fyrir um það bil þrettán árum með það að markmiði að hjálpa fátækum og foreldralausum börnum á Suður-Indlandi,“ segir Gunnar Kvaran, einn stjórnarmanna félagsins. „Við komumst að raun um það að besta hjálpin fyrir þessi börn væri að styrkja þau til náms. Við erum að styrkja ýmsa skóla og stofnanir og höldum árlega styrktartónleika til að afla fjár. Auk þess eru í okkar röðum foreldrar sem taka að sér einstök börn og styrkja þau með mánaðarlegum greiðslum. Við erum með heimasíðuna vinirindlands.is og þar getur fólk sett sig í samband við okkur ef það vill styrkja starfið en kemst ekki á tónleikana í kvöld.“



Allur ágóði tónleikanna rennur óskiptur til verkefnanna og listamenn gefa alla vinnu sína. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.