Spennandi kostir í boði á Íslandi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 29. nóvember 2014 06:00 Pálmi Rafn skoðar nú sína möguleika. Hann er hér í landsleik. fréttablaðið/afp „
Við hjónin ætluðum að eiga náðuga viku í borginni en það hefur ekki alveg farið þannig,“ segir Húsvíkingurinn Pálmi Rafn Pálmason en hann hefur eytt lunganum úr vikunni í að ræða við Pepsi-deildarlið sem vilja ólm semja við leikmanninn. Hann er búinn að ræða við Val, KR og FH og KA-menn hafa einnig áhuga á því að semja. Pálmi hefur því ýmsa valkosti hér heima. „Ég er á leið norður í sæluna núna og mun skoða mín mál þar í rólegheitunum,“ segir Pálmi Rafn en hann hefur heldur ekki lokað hurðinni á að spila áfram erlendis en hann hefur verið í herbúðum Lilleström síðustu þrjú ár. Félagið vill halda honum en virðist ekki hafa bolmagn til þess. „Ég hef fengið tilboð úti en þau hafa ekki verið spennandi. Ég er samt enn að gæla við að það komi upp eitthvað spennandi. Ég tel mig enn vera það góðan að ég geti fengið eitthvað spennandi úti. Það hefur ekki enn komið. Það er ekkert lífsspursmál fyrir mig að spila erlendis. Þá væri ég búinn að skrifa undir einhvers staðar.“ Þó svo það komi ekkert spennandi að utan á næstunni þá má telja líklegt að ef Pálmi semur við íslenskt lið verði það með þeim möguleika að hann geti farið utan í janúar komi tilboð sem hann vilji taka. Leikmaðurinn vildi ekkert tjá sig um það. „Þetta eru spennandi kostir hér heima. Flott lið og við fjölskyldan tökum svo ákvörðun um hvað skal gera.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Látnir gista líka á æfingasvæðinu Enski boltinn Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum Enski boltinn Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Enski boltinn Í beinni: Wolves - Man. Utd | Úlfarnir vaknaðir? Enski boltinn Sáu ekki til sólar en unnu samt Enski boltinn „Ég elska NFL deildina en jóladagur er okkar“ Körfubolti Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia Fótbolti Hafa tvisvar áður mæst: „Gakpo er sem betur fer í mínu liði núna“ Enski boltinn Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Fótbolti Meistarinn gæti þurft að slá út tvo nafna sína á leiðinni í úrslit Sport Fleiri fréttir Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum „Ég get ekki beðið að koma aftur til Íslands“ Ef launin væru svo há hefði ég gert fimm ára samning Verður áfram í grænu næsta sumar Arnór ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Eiður Gauti skoraði tvö á Mosfellsbræðurna í fyrsta leik Opnar sig um brjálæðið á Skaganum: Fékk áfall og átti erfitt með svefn Vuk í Fram Bankastarfsmaðurinn sem fór úr 3. deild í KR „Gaman að heyra hann öskra á bakvið mann“ Þungavigtarbikarinn hefst í janúar „Heyrt margar reynslusögur“ Bræðurnir saman í Mosó og Íslandsmeistari mættur Framkvæmdastjóraskipti hjá Val Fyrsta skóflustunga tekin og KR spilar á gervigrasi Sjá meira