Menning

Oddný Eir og Steinar Bragi í Gunnarshúsi

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Oddný Eir og Steinar Bragi
Oddný Eir og Steinar Bragi
Húsráð Gunnarshúss stendur fyrir vikulegum höfundakvöldum í Gunnarshúsi fram að jólum. Á hverju fimmtudagskvöldi mæta tveir höfundar og spjalla um bækur sínar, lesa aðeins úr þeim, og síðan gefst áhorfendum kostur á að spyrja líka. Meiningin er að lyfta jólabókavertíðinni aðeins upp úr fari hinna hefðbundnu upplestrarkvölda og gefa hverri bók og hverjum höfundi meiri tíma.



Í kvöld mæta þau Oddný Eir Ævarsdóttir og Steinar Bragi, lesa upp og svara spurningum Höllu Oddnýjar Magnúsdóttur um nýútkomnar bækur sínar, Ástarmeistarann og Kötu. Allir velkomnir á meðan stólar leyfa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×