Menning

Jólaandi liðinna tíma

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hlín, Hólmfríður og Jón hafa unnið saman rúm í þrjú ár og víða komið fram.
Hlín, Hólmfríður og Jón hafa unnið saman rúm í þrjú ár og víða komið fram.
Þau Hlín Pétursdóttir Behrens sópran, Hólmfríður Jóhannesdóttir, messósópran og Jón Sigurðsson píanóleikari flytja sína eftirlætistónlist sem tengist jólum og aðventu í Dómkirkjunni á sunnudaginn.

Á dagskránni eru bæði gamalkunnug og minna þekkt íslensk jólalög. Meðal þeirra eru söngvar eftir Þórunni Guðmundsdóttur sem sýnir jafnan tilveruna í nýju ljósi, jafnvel spaugilegu, það á meðal annars við um jólaundirbúninginn og jólasiðina. Einnig hljómar tónlist eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson, Jón Hlöðver Ásgeirsson, Ingibjörgu Þorbergs og Gunnar Þórðarson. Af erlendum tónskáldum sem koma við sögu má nefna Benjamin Britten og Max Reger.

„Eftirvænting eftir komu jólanna er eitthvað sem fæst okkar vaxa upp úr,“ segir Hlín og heldur áfram á heimspekilegum nótum.

„Þegar tilhlökkunin nær hámarki birtast okkur ljóslifandi minningar um jólaanda liðinna tíma sem fylla hug og hjarta. Þetta eigum við ekki síst jólalögunum að þakka sem mynda ramma utan um hefðirnar sem tengja okkur um leið við fortíðina.“

Tónleikarnir hefjast klukkan 16. Aðgangseyrir er kr. 2.000 og 1.500 fyrir öryrkja og eldri borgara.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×