Menning

Vasi með verkum tíu listamanna

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Margir hafa gaman af að fá árituð verk og smá nasaþef af því sem er að gerast í myndlistinni,“ segir Kristín Karólína Helgadóttir.
"Margir hafa gaman af að fá árituð verk og smá nasaþef af því sem er að gerast í myndlistinni,“ segir Kristín Karólína Helgadóttir. Fréttablaðið/Stefán
Salon-serían sem Gamli Sfinxinn gefur út er vasi sem inniheldur tíu árituð verk eftir tíu listamenn. Einungis hundrað eintök eru gefin út og fást í Kunstschlager á Rauðarárstíg 1.

Kristín Karólína Helgadóttir stendur að baki útgáfunni ásamt Guðlaugu Míu Eyþórsdóttur.

„Salon-útgáfan er ein sinnar tegundar á Íslandi, Nú er kominn vasi númer 2, Salon Nangas og hefur meðal annars að geyma verk eftir Curver Thoroddsen, Eggert Pétursson og Elínu Hansdóttur,“ lýsir hún.

„Við buðum tíu listamönnum að vera með og þeir höfðu frjálsar hendur. Við leggjum upp úr því að fá sem breiðastan hóp, einhverja sem eru að gera það gott í dag, einhverja eldri og líka einhvern óvæntan sem hefur ekki verið mikið að koma fram listamaður en er samt að vinna í myndlist.“

Hún segir kaupandann ekki sjá verkin heldur verða að treysta listamönnunum. „Margir hafa gaman af að fá árituð verk og smá nasaþef af því sem er að gerast í myndlistinni,“ bendir hún á.

Þetta er annað árið sem þær stöllur gefa út svona vasa. Kristín segir fyrstu útgáfu hafa gengið vel. „Við fjármögnuðum þessa útgáfu með því sem inn kom í fyrra og það dugði líka fyrir einni sýningu í galleríinu. Þannig að ágóðinn fer í ákveðna myndlistaruppbyggingu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.