Menning

Frumflytja fjögur jólalög eftir Hafliða

Schola cantorum Tónlistin á jólatónleikunum er allt frá tónsmíðum 16. aldar til glænýrra íslenskra laga.
Schola cantorum Tónlistin á jólatónleikunum er allt frá tónsmíðum 16. aldar til glænýrra íslenskra laga. .Mynd: Gunnar Freyr Steinsson
Kammerkórinn Schola cantorum heldur jólatónleika í Hallgrímskirkju sunnudaginn 28. desember klukkan 17. Tónlistin er úr ýmsum áttum en einkennist öll af hátíðlegum andblæ jólahátíðarinnar þar sem kórinn mun syngja lög allt frá þýskum meisturum 16. aldar til nýrra verka, auk vel þekktra jólalaga.



Af íslenskum verkum tónleikanna ber hæst frumflutning á fjórum jólalögum eftir Hafliða Hallgrímsson en undanfarið hafa jólalög hans fyrir kóra vakið athygli á Englandi þar sem hann er búsettur. Vel þekkt lög, bæði íslensk og erlend, munu hljóma og má þar nefna Betlehemsstjörnuna eftir Áskel Jónsson, Jólagjöfina eftir Hörð Áskelsson og Ó, helga nótt eftir Adams.



Einsöngvarar eru Fjölnir Ólafsson barítón, Hildigunnur Einarsdóttir alt og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópran auk þess sem aðrir einsöngvarar úr röðum kórfélaga syngja einsöngsstrófur. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson og stjórnandi Hörður Áskelsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.