Menning

Elska í Reykjavík

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Oft spunnust skemmtilegar umræður eftir sýningarnar,“ segir Jenný Lára sem sýndi Elsku í Þingeyjarsýslum í desember.
„Oft spunnust skemmtilegar umræður eftir sýningarnar,“ segir Jenný Lára sem sýndi Elsku í Þingeyjarsýslum í desember.
Eru einkenni sannrar ástar þau sömu í dag og þau voru um miðbik síðustu aldar? Hafa þau breyst? Eða hefur skilgreining okkar á sannri ást breyst í gegnum tíðina? Hvað hefur breyst? Þannig spyr Jenný Lára Arnórsdóttir í einleiknum Elska sem sýndur verður á Café Rósenberg í kvöld og annað kvöld.



Elska er unnin upp úr sönnum ástarsögum Þingeyinga á okkar dögum því verkið er byggt á viðtölum við pör og einstaklinga á aldrinum 24 til 78 ára sem tekin voru upp síðla árs 2013. Jenný Lára hefur unnið handritið upp úr þeim upptökum og leikurinn er einnig í höndum hennar.



„Elska hlaut afar góðar viðtökur fyrir norðan og oft spunnust skemmtilegar umræður eftir sýningarnar,“ segir Jenný Lára sem að sjálfsögðu svarar einnig spurningum á Rósenberg eftir sýningarnar ef fólk hefur áhuga á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.